Beint í efni

Yfirlit yfir rannsóknir og samstarf íslenskra ljósmæðra erlendis

Árið 2025 birtust þrjár ritrýndar fræðigreinar í Ljósmæðrablaðinu og frá síðasta vori hafa íslenskar ljósmæður jafnframt átt aðild að fjórtán ritrýndum greinum í erlendum fagtímaritum. Yfirlit yfir þessar greinar má sjá í meðfylgjandi töflu.

Þessar rannsóknir eru margar hverjar unnar í þverfaglegu samstarfi við ljósmæður og aðra fræðimenn víða um heim og má hér sjá lista yfir þau samstarfsverkefni sem ljósmæður á Íslandi hafa verið að vinna að síðasta árið. Þær greinar sem hafa birst og tengjast sérstökum verkefnum eru þannig merktar í töflunni.

  1. BirthSAGA (Rannís styrknúmer 218139-051). Emma Marie Swift og Valgerður Lísa Sigurðardóttir.
  2. COST verkefnið Maternal perinatal stress and adverse outcomes in the offspring: maximising infants’ development (TREASURE) (CA22114). Sigfríður Inga Karlsdóttir og Sigríður Sía Jónsdóttir.
  3. Geðheilsuvernd í kringum barnsburð, rannsóknarverkefni. Sigríður Sía Jónsdóttir og Valgerður Lísa Sigurðardóttir.
  4. Heilsutengd lífsgæði, lífshættir og verkir meðal almennings á Íslandi: Uppbygging á víðtækum gagnagrunni. Sigfríður Inga Karlsdóttir.
  5. IMAgiNE GLOBAL (Improving MAternal Newborn carE In the GLOBAL Region). Emma Marie Swift og Valgerður Lísa Sigurðardóttir.
  6. INTERSECT – International Survey of Childbirth-Related Trauma. Valgerður Lísa Sigurðardóttir og Emma Marie Swift.
  7. Nordejordemodern (Midwife of the North): Kennslu- og rannsóknarsamstarf Norðurlanda og Eystrasaltslanda. Valgerður Lísa Sigurðardóttir.
  8. Nordic Network of Academic Midwives (NorNAM). Helga Gottfreðsdóttir og Berglind Hálfdánsdóttir.
  9. Nordic Network on over- and under-Medicalisation (NNOM). Helga Gottfreðsdóttir og Emma Marie Swift.
  10. The Nordic Homebirth Study. Berglind Hálfdánsdóttir.
  11. Rannsóknanet norrænna ljósmæðra í samstarfi við háskólann í Maastricht, Hollandi, og Mbarara háskóla í Úganda. Helga Gottfreðsdóttir.

Ólöf Ásta skrifaði auk þess ásamt samstarfsfélögum í MíMó verkefninu sem lauk á árinu, kaflann „Relationships in the Birth Space“ í bókinni Humanising Birth, Considerations for the Global Maternity Crises (doi. org/10.1007/978-9). MíMó verkefnið fjallaði um þróun fræðilegs ljósmóðurfræðilegs líkans sem byggir á konumiðaðri þjónustu í Svíþjóð og á Íslandi, innleiðingu þess og notagildi í ljósmóðurnámi og starfi. Birtur hefur verið fjöldi greina og kaflar í bókum úr því verkefni og niðurstöður hafa verið kynntar á ráðstefnum innan lands og utan.

Til gamans má geta að nú eru 25 ár frá því að fyrsta ritrýnda greinin birtist í Ljósmæðrablaðinu. Þetta var greinin: Hvað felst í mæðravernd. Viðhorf kvenna og ljósmæðra eftir Helgu Gottfreðsdóttur í 2. tölublaði Ljósmæðrablaðsins árið 2001.