Hvers vegna kjarafélagi í LMFÍ?
Ljósmæðrafélag Íslands er hagsmuna félag ljósmæðra og einbeitir sér að hagsbótum fyrir ljósmæður og barnshafandi fjölskyldur.
Hvað fæ ég fyrir að vera kjarafélagi í Ljósmæðrafélagi Íslands?
Kjarafélögum LMFÍ stendur til boða ráðgjöf og lögfræðileg aðstoð tengd starfi þeirra og kjörum.
Rannsókna- og þróunarsjóður LMFÍ er ætlaður til styrktar rannsóknum og framhaldsnámi í ljósmóðurfræðum.
Kjarafélagar Ljósmæðrafélagsins eru sjóðfélagar í starfsmenntunarsjóði BHM og geta fengið úthlutað allt að 100.000 kr styrk til ráðstefna, námskeiða og náms, á tveggja ára fresti.
Sjá nánar hér.
Kjarafélagar Ljósmæðrafélagsins sem starfa á opinberum vinnumarkaði eru sjóðfélagar í styrktarsjóði BHM og geta sótt um styrki til t.d. gleraugnakaupa, tannviðgerða, líkamsræktar, meðferðar ofl.
Sjá nánar hér.
Kjarafélagar Ljósmæðrafélagsins sem starfa á almennum vinnumarkaði eru sjóðfélagar í sjúkrasjóði BHM og geta sótt um styrki til t.d. gleraugnakaupa, tannviðgerða, líkamsræktar, meðferðar ofl., auk sjúkradagpeninga.
Sjá nánar hér.
Kjarafélagar Ljósmæðrafélagsins eru sjóðfélagar í orlofssjóði BHM sem er stór og stöndugur orlofssjóður sem býður upp á marga orlofskosti hérlendis og erlendis.
Sjá nánar hér.
Starfsþróunarsetur háskólamanna var sett á laggirnar í janúar 2012. Tilgangur þess er að stuðla að framgangi starfsmanna og auka og nýta þekkingu sína í starfi, bæta við og/eða endurnýja menntun sína.
Sjá nánar hér.