
Ljósurnar (Ljósmæður eldri en 60 ára) fóru í sína árlegu vorferð, sem er alltaf fyrsti miðvikudagur í júní, á slóðir Sigríðar í Brattholti. Sigríður er fræg fyrir að bjarga Gullfossi frá því að vera virkjaður. Nefndin fékk Eyrúnu Ingadóttur sagnfræðing til að vera leiðsögumaður í ferðinni, en hún ritaði ævisögu Sigríðar. Eyrún er okkur ljósmæðrum kunn þar sem hún skrifaði einnig ævisögu Þórdísar Símonardóttur ljósmóður á Eyrarbakka.
Lagt var af stað frá Borgarleikhúsinu um morguninn, en 54 ljósmæður voru mættar. Fyrsta stopp var í lystigarðinum í Hveragerði, þar sem við ljósmæður gengum um garðinn og fengum okkur smá hressingu áður en lagt var af stað áfram á Hlemmiskeið. Á Hlemmiskeiði tók Rósa Bragadóttir ljósmóðir og hennar fólk á móti okkur með frábæra heita súpu í hádegisverð. Þar var mikið spjallað og Rósa og hennar maður Ómar sýndu okkur bæjarstæðið og fóru með okkur í göngu um eignina.
Síðan var haldið sem leið lá um slóðir Sigríðar í Brattholti og fengum við skemmtilega frásögn af hennar baráttu gegn virkjun fossins hjá Eyrúnu. Skoðuðum við Gullfoss í frekar blautu veðri en hlýju. Frá Gullfossi fórum við sem leið lá í Haukadal þar sem veittur var fordrykkur og áfram var ferðinni haldið á Hótel Geysi þar sem við nutum kvöldverðar.
Ferðin var frábær eins og alltaf. Ljósmæður eru yndislegar og svooooo skemmtilegar. Takk fyrir daginn allar og við í nefndinni hlökkum til næsta árs.



