Beint í efni

Verk á forsíðu

Hulda Sigurlína Þórðardóttir er ljósmóðir, hjúkrunarfræðingur og IBCLC-brjóstagjafaráðgjafi. Hulda lauk námi í hjúkrunarfræði árið 1988 og öðlaðist alþjóðlega vottun sem brjóstagjafaráðgjafi árið 2008. Árið 2011 lauk hún námi í ljósmóðurfræði, þá 48 ára gömul, og uppfyllti draum sinn um að styðja konur og fjölskyldur í tengslum við fæðingarreynslu og í því mikilvæga hlutverki að verða foreldri.

Hulda Lína hefur starfað á fjölbreyttum stöðum í heilbrigðisþjónustunni, meðal annars á barnadeild Landakots, Læknavaktinni, hún var hjúkrunarforstjóri Heilsustofnunar NLFÍ í Hveragerði og hefur einnig starfað sem ljósmóðir á fæðingar- og sængurlegudeild Landspítala og Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Þá hefur Hulda Lína sinnt brjóstagjafaráðgjöf, foreldrafræðslu og stuðningi við mæður og foreldra, bæði á heilsugæslu og í heimaþjónustu eftir fæðingu.

Áhugi Huldu á brjóstagjöf á rætur að rekja til þess tíma þegar hún sjálf varð móðir fyrir fjórum áratugum, en þá naut hún góðs af stuðningi við brjóstagjöf frá „hjálparmæðrum“, sem mótaði sýn hennar sjálfrar. Um árabil starfaði hún í kjölfarið sem sjálfboðaliði við móður-til-móður stuðning, sinnti símaráðgjöf og tók þátt í ritstjórn Mjólkurpóstsins, útgáfu Áhugafélags um brjóstagjöf. Þá var Hulda Lína einn af höfundum Brjóstagjafabókarinnar sem gefin var út árið 2024.

Hulda Lína hefur haft áhuga á listsköpun í fjölbreyttu formi. Hún er áhugaljósmyndari og var nýverið með sýningu ásamt tengdadóttur og barnabarni á bókasafninu í Hveragerði um tengsl mæðra og afkvæma. Á sýningunni sýndi Hulda Lína ljósmyndir af höndum ljósmæðra.

Verkið á forsíðunni, sprettur upp úr þessari löngu vegferð Huldu um áhuga á móðurhlutverkinu og brjóstagjöf. Á yfirborðinu birtist verkið sem einfalt textílverk sem minnir á brjóst eða nærandi uppsprettu. Úr miðjunni teygja sig fíngerðar spírur sem leita út í rýmið, líkt og rætur sem minna á tenginguna milli móður og barns. Verkið vísar til þeirrar næringar sem er ekki aðeins líkamleg heldur einnig tilfinningaleg og felst í öryggi, tengslamyndun og umhyggju.