Óhætt er að segja að starfsvettvangur ljósmæðra verði sífellt fjölbreyttari og að ljósmæður komi nú að kvenheilsu á öllum æviskeiðum — frá getnaðarvörnum og frjósemi til breytingaskeiðs, auk allra okkar sérhæfðu starfa í barneignarferlinu sjálfu. Innan Heilsubrúar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hafa ljósmæður átt lykilþátt í uppbyggingu nýrrar og sérhæfðrar þjónustu fyrir konur.
Í Heilsubrú starfa ljósmæðurnar Steinunn Zophoníasdóttir, Sigrún Kristjánsdóttir og Jórunn Oddsdóttir við fjölbreytt verkefni sem tengjast kvenheilsu, fræðslu, ráðgjöf og meðferð á ólíkum sviðum.
Saga Heilsubrúar hófst haustið 2021 þegar þáverandi heilbrigðisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, gaf út tilskipun um þróun og innleiðingu tilraunaverkefnis innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH). Um var að ræða sérhæfða þjónustu fyrir konur með áherslu á fjóra þætti: getnaðarvarnir, breytingaskeið kvenna, sértæka sjúkdóma sem herja eingöngu á konur og ofbeldi og áföll kvenna. Þrír starfsmenn voru ráðnir til verkefnisins í hlutastörf; þær Sólrún Ólína Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur, Erla Gerður Sveinsdóttir læknir og Steinunn Zophoníasdóttir ljósmóðir.
Nýja deildin fékk upphaflega heitið Kvenheilsa og fyrsta verkefnið var þróun og innleiðing þjónustu fyrir konur á breytingaskeiði. Steinunn og Sólrún höfðu báðar skrifað meistaraverkefni í hjúkrunar- og ljósmóðurfræði um breytingaskeiðið og gátu því nýtt sérþekkingu sína í þetta verkefni. Meðal fyrstu verkefna var útgáfa fræðsluefnis um breytingaskeiðið sem birt var á Heilsuveru árið 2022. Sama ár hófst hópfræðslan „Fögnum næsta áfanga“ hjá Kvenheilsu og skömmu síðar bættist námskeiðið „Lífsstíll á breytingaskeiði“ við. Þegar þetta er skrifað hafa á annað þúsund konur sótt námskeiðin og í dag býðst konum einnig að bóka einstaklingsráðgjöf hjá Steinunni að námskeiði loknu ef þörf er á.
Árið 2022 bættist Sigrún Kristjánsdóttir ljósmóðir í Kvenheilsuhópinn og hefur síðan haldið utan um hópfræðslu um fitubjúg, sjúkdóm sem herjar eingöngu á konur. Ekkert lát er á aðsókn í hópfræðsluna né einstaklingsviðtölin sem standa konum til boða í framhaldinu. Sigrún heldur einnig námskeið um offitu og þyngdarstjórnunarkerfi líkamans sem eru í boði hjá Heilsubrú. Offita er eitt helsta heilsufarsvandamál hins vestræna heims og þar erum við Íslendingar ofarlega á blaði. Þetta er sérstaklega mikilvægt að hafa í huga hjá konum á frjósemisskeiði þar sem auknir áhættuþættir geta fylgt meðgöngu hjá konum í mikilli ofþyngd auk þess sem frjósemi getur verið skert hjá þessum hópi.
Árið 2023 var tekin ákvörðun um að kanna þörfina fyrir getnaðarvarnaráðgjöf. Upphaflega var þróuð hópfræðsla sem fór fram á netinu, en þátttaka var lítil og í kjölfarið vöknuðu spurningar um hvort raunveruleg þörf væri fyrir slíka þjónustu. Þegar Jórunn ljósmóðir bættist í okkar góða hóp árið 2023, nýttum við hennar fersku reynslu frá Svíþjóð, en Jórunn lærði ljósmóðurfræði þar í landi. Hún hafði starfað á ungmennamóttöku í Lundi þar sem ljósmæður sinna allri getnaðarvarnaráðgjöf, hafa lyfjaávísanaleyfi og setja upp lykkjur og stafi, eins og ljósmæður hafa haft leyfi til síðast liðin 50 ár. Jórunn kom því með dýrmæta reynslu inn í starfsemi Heilsubrúar sem hún var tilbúin að miðla áfram og í kjölfarið var ákveðið að opna getnaðarvarnamóttöku og bjóða upp á einstaklingsmiðaða ráðgjöf.
Getnaðarvarnaráðgjöf Heilsubrúar var opnuð sumarið 2024 og hófst starfsemin í fyrstu í 10–20% starfi hjá Steinunni. Tímarnir eru bókanlegir í gegnum Heilsuveru og í dag starfa Steinunn og Jórunn ásamt Írisi Dröfn Björnsdóttur hjúkrunarfræðingi í alls 80–90% stöðu við getnaðarvarnaráðgjöfina. Í boði eru 45 mínútna ráðgjafatímar, lyfjaávísanir og uppsetning og fjarlæging á lykkjum og stöfum. Viðtökur hafa farið fram úr væntingum og ljóst er að þörfin fyrir þjónustuna er mikil.
Auk getnaðarvarnaráðgjafar sinnir Jórunn starfi framhaldsskólahjúkrunarfræðings í Menntaskólanum við Sund og Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ innan Heilsubrúar, en hjúkrunarfræðingar í framhaldsskólum heyra undir Heilsubrú. Þar sér Jórunn meðal annars um fræðslu um kynheilbrigði og sinnir getnaðarvarnaráðgjöf.

Ljósmæður Heilsubrúar sinna einnig verðandi foreldrum á meðgöngu. Sigrún sér um námskeiðið „Undirbúningur fæðingar“, sem er kennt í tveimur tveggja tíma lotum. Vegna mikillar aðsóknar er námskeiðið nú kennt í fjarnámi á Teams. Þá er einnig boðið upp á námskeiðið „Andleg líðan á meðgöngu“, sem þróað var og innleitt af sálfræðingi Heilsubrúar ásamt Steinunni ljósmóður. Námskeiðið fer sömuleiðis fram í tveimur tveggja tíma lotum og er sérstaklega ætlað verðandi mæðrum sem vilja efla andlega líðan sína í barneignarferlinu. Að námskeiði loknu geta þátttakendur óskað eftir viðtali hjá sálfræðingi Heilsubrúar ef um mikla andlega vanlíðan er að ræða eða hjá Steinunni ef þörf er á að ræða erfiða fyrri fæðingarreynslu, kvíða eða ótta fyrir komandi fæðingu. Að lokum má nefna að Steinunn sinnir stöðusónar hjá Heilsubrú. Öll þjónusta og námskeið fyrir verðandi foreldra innan HH eru gjaldfrjáls.
Fram undan eru fleiri ný og spennandi ljósmæðraverkefni hjá Heilsubrú. Sigrún og Steinunn eru að undirbúa hópfræðslu um endómetríósu í samstarfi við Endó-samtökin og stefnt er að því að bjóða upp á þá fræðslu næsta vetur. Einnig er verið að undirbúa opnun móttöku í leghálsskimun fyrir hreyfihamlaðar konur í samstarfi við Samhæfingarstöð krabbameinsskimana (SKS). Elísabet Heiðarsdóttir, leiðtogi ljósmæðra hjá HH, Hlín Árnadóttir ljósmóðir hjá SKS og Steinunn munu annast móttökuna.
Heilsubrú hefur stækkað mikið og þróast á þeim tæpu fimm árum sem liðin eru frá stofnun hennar sem Kvenheilsu. Um er að ræða miðlæga þjónustueiningu innan HH sem styður við og bætir við þá þjónustu sem veitt er á heilsugæslustöðvum. Stór hluti starfseminnar felst í fræðslu og ráðgjöf. Í dag starfa um 24 einstaklingar hjá Heilsubrú í mismiklum starfshlutföllum, þar á meðal læknar, hjúkrunarfræðingar, ljósmæður, sálfræðingar og næringarfræðingar.
Auk ofangreindrar ljósmæðraþjónustu eru í boði úrræði fyrir fólk sem glímir við lífsstílstengdan vanda, offitu, sykursýki 2, næringarvandamál, andlega vanlíðan og svefnvanda, svo dæmi séu nefnd. Fjölbreytt námskeið eru í boði, meðal annars hugræn atferlismeðferð (HAM), námskeiðið Þyngdarstjórnunarkerfið og önnur hópfræðsla, auk þess sem sums staðar er boðið upp á ráðgjöf, einstaklingsviðtöl eða meðferð. Síðast en ekki síst heyra læknar áhættumæðraverndar HH undir Heilsubrú. Hægt er að bóka námskeiðin á Heilsuveru og vægt gjald er tekið fyrir sum námskeiðin.
Fjölbreytni ljósmóðurstarfa í Heilsubrú er gott dæmi um hvernig útvíkka má starfssvið ljósmæðra. Þessi störf sýna jafnframt hve víða í samfélaginu ljósmæður, með sína sérþekkingu, geta gegnt mikilvægu hlutverki langt út fyrir hefðbundna fæðingarþjónustu. Sérþekking þeirra nýtist á fjölmörgum sviðum kvenheilsu og undirstrikar mikilvægi ljósmæðra í heilbrigðisþjónustu, bæði hjá hinu opinbera og í einkarekstri.