Beint í efni

Málþing til heiðurs Ingibjörgu Eiríksdóttur

Þann 12. febrúar síðastliðinn var haldið málþing í Hringsal Landspítala til heiðurs Ingibjörgu Eiríksdóttur ljósmóður í tilefni af starfslokum hennar. Fjölmenni ljósmæðra og góðra gesta mætti til að fagna lífsstarfi Ingibjargar á þessum merku tímamótum. Við sem mættum fengum góða innsýn í starf Ingibjargar frá samferðarljósmæðrum, en erindi dagsins einkenndust af virðingu, þakklæti og hlýju í hennar garð – enda hefur Ingibjörg haft víðtæk og djúp áhrif á íslenskt ljósmóðursamfélag og ljósmóðurfræði.

Málþingið var sett af Maríu Þórisdóttur, yfirljósmóður á meðgöngu og sængurlegudeild. Líkt og margar aðrar ljósmæður hafði María notið hand­leiðslu Ingibjargar á sínum náms- og starfsferli, og lýsti hún henni sem áhrifamiklum kennara og fyrirmynd í starfi.

Fyrsta erindi dagsins flutti Ólöf Ásta Ólafsdóttir ljósmóðir, undir yfirskriftinni „Ljósmóðir fræða og listar af lífi og sál“. Þar rakti hún feril Ingibjargar – frá áhugasamri ljósmóður til öflugs fræðimanns, sem kafaði djúpt í viðfangsefni sín og lýsti frumkvöðlastarfi hennar á sviði brjóstagjafar og tvíburafæðinga. Næst tók Ingibjörg Th. Hreiðarsdóttir til máls með erindið „Fagmennska og mannleg nálgun – hlutverk sérfræðiljósmóður“. Frásögn Ingibjargar var einlæg og persónuleg, en þær nöfnur þekkjast bæði sem skjólstæðingar og samstarfskonur. Ingibjörg lýsti fagmennska nöfnu sinnar, sem byggði á gagnreyndri þekkingu og djúpri virðingu fyrir skjólstæðingum, enda hefði hún haft mótandi áhrif á nýjar kynslóðir ljósmæðra. Þá rifjaði Ingibjörg upp minnisstæð tímamót þegar þær fengu nafnbótina sérfræðiljósmóðir, í hópi frumkvöðla árið 2013.

Hallfríður Kristín Jónsdóttir hélt næsta erindi, „Fyrirmyndin og áhrifavaldurinn“, þar sem hún lýsti Ingibjörgu sem sterkum áhrifavaldi og líkti henni við „oxýtósínið sem flæðir“ – í yfirfærðri merkingu. Hún sagði frá samstarfi þeirra, meðal annars í tengslum við meistaraverkefni sitt, og dró fram mikilvægi stöðugrar endurmenntunar í brjóstagjöf. Þá kom fram að Ingibjörg hefur látið til sín taka á alþjóðavettvangi, meðal annars í stefnumótunarvinnu hjá WHO í Genf, þar sem hún hlaut viðurnefnið „rokkstjarna brjóstagjafar“ á Íslandi. Einnig var minnst á mikilvægt samstarf sérfræðinga við útgáfu nýrrar bókar um brjóstagjöf.

Ný rödd kom fram í erindi Rebekku Sifjar Stefánsdóttur, „Inga ljósa – frá sjónarhóli móður“. Hún sagði frá persónulegri reynslu sinni og tengslum við Ingibjörgu allt frá barnæsku. Frásögn hennar af stuðningi Ingibjargar í gegnum fósturmissi og á næstu meðgöngu var áhrifamikil og sýndi vel mannlegu hliðina á starfi hennar – hlýjuna, umhyggjuna og viskuna sem hún miðlar til skjólstæðinga sinna.

Að lokum flutti Valgerður Lísa Sigurðardóttir erindið „Leiðtogi og samstarfskona í blíðu og stríðu“. Hún fjallaði um baráttuna fyrir viðurkenningu sérfræðiljósmæðra og hversu stórt skref það var í þróun fagsins. Hún lýsti Ingibjörgu sem leiðtoga sem hrífur fólk með sér, fyrirmynd sem mótar verklag og leggur áherslu á teymisvinnu og gæði þjónustu. Jafnframt dró hún upp hlýja mynd af henni sem manneskju – ljósmóðurinni, ömmunni, hannyrðakonunni og kisuvinkonunni.

Málþinginu lauk með stuttri samantekt og síðan kaffiveitingum þar sem gestir áttu notalegar samverustundir.

Dagurinn var verðugur heiður Ingibjörgu Eiríksdóttur og sýndi með skýrum hætti hversu djúp og víðtæk áhrif hennar hafa verið – bæði á fagið og fólkið sem hún hefur starfað með og fyrir.

Fyrirlesarar dagsins ásamt Ingibjörgu Eiríksdóttur, fv: Rebekka Sif, Ólöf Ásta, Ingibjörg Eiríks, Valgerður Lísa, Hallfríður Kristín og Ingibjörg Hreiðars.
Rebekka Sif, Ólöf Ásta, Ingibjörg og Hallfríður flytja erindi sín sem voru hjartnæm, fróðleg og full af húmor.