Beint í efni

Ljósuferð 2025

Hin árlega ferð Ljósanna var farin þann 4. júní síðastliðinn, en hefð er fyrir því að ferðin sé farin fyrsta miðvikudag í júnímánuði ár hvert. Þetta skiptið var ákveðið að fara til Vestmannaeyja með hópinn. Árla morguns 4. júní var lagt af stað frá Borgarleikhúsinu með rúmlega 50 ljósmæður í rútu. Nokkrar ljósmæður bættust við í Hveragerði og á Selfossi þannig að alls urðum við 55 talsins. Veðrið var frábært, bjart og hlýtt en nokkuð rok.

Hópurinn sigldi með Herjólfi og var mættur til Eyja klukkan 10:30, daginn skildi nýta vel. Rútan var með okkur allan daginn og byrjaði á að keyra okkur til Þórunnar ljósmóður sem er búsett í Eyjum. Hún bauð okkur öllum ljósmæðrunum til sín í heitt kakó og bauð nefndin upp á drykki og samlokur frá Lemon. Þórunn býr í húsi við Helgafell þar sem stórkostlegt útsýni er yfir Eyjarnar og kunnum við henni bestu þakkir fyrir þetta huggulega boð.

Frá Þórunni fórum við með Ragnari Óskarssyni leiðsögumanni vítt og breytt um eyjuna, stoppuðum á nokkrum stöðum og fræddumst um sögu eyjunnar. Túrinn endaði á Skansinum þar sem við skoðuðum Stafnkirkjuna og Landlyst sem hefur að geyma merkar minjar um ljósmæðrastörf. Allt var þetta virkilega skemmtilegt og veðrið yndislegt allan daginn.

Næst var ferðinni heitið að Sagnasafninu sem við skoðuðum og fórum meðal annars í Þjóðhátíðartjald sem þar er. Þar kom til okkar trúbadorinn Arnar sem tók með okkur nokkur lög og myndaðist sannkölluð Þjóðhátíðarstemming. Ljósmæðurnar röltu síðan niður í bæ, þar kíktum við í verslunina Kubuneh sem selur notaðar vörur. Öll vinna í kringum verslunina er unnin í sjálfboðaliðastarfi og ágóðinn fer til þorpsins Kubuneh í Gambíu þar sem rekin er lítil heilsugæslustöð. Frábært framtak og við heyrðum líka af því að nú sé aðstoð einnig veitt til þess að mennta stúlkur til ljósmæðrastarfa þar.

Við enduðum ferðina síðan í Vöruhúsinu og borðuðum frábæran mat, sigldum með Herjólfi sáttar og glaðar eftir yndislegan dag saman.

Takk fyrir frábæran dag elsku bestu ljósmæður.

Þess má geta í lokin að ljósmæður eiga hauk í horni víða og eru duglegar að fá afslátt handa okkur. Lemon og Snæland/Grímsson styrktu okkur vel í formi góðs afsláttar og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.

Vestmannaeyjar og Ljósurnar skörtuðu sínu fegursta.
Skemmtinefndin að störfum. Ástþóra og Gulla Páls. 
Þjóðhátíðarstemmning í tjaldinu.