Beint í efni

Ljósmæður bætast í leiðbeinendahópinn nýbura (NLS – Newborn Life Support)

NLS – Newborn Life Support

Í apríl í fyrra fékk ég tækifæri til að fara á NLS (Newborn Life Support), sem er námskeið í endurlífgun nýbura á vegum Endurlífgunarráðs Íslands. Þjálfunin sem ég fékk á námskeiðinu hefur styrkt mig í starfi mínu á fæðingarvaktinni, gefið mér aukið sjálfstraust og færni í að meta nýbura við fæðingu og veita öndunaraðstoð þegar þess þarf.

NLS-námskeiðið hefur verið kennt hjá ERC (European Resuscitation Council) frá árinu 1999 og hér á Íslandi frá árinu 2022. NLS er ætlað heilbrigðisstarfsmönnum sem koma að fæðingum og þurfa því að vera færir um að aðstoða nýbura við að aðlagast lífi utan móðurkviðar og meta í hvaða tilvikum þörf sé á öndunaraðstoð eða jafnvel endurlífgun.

Leiðbeinendur námskeiðsins eru frábært teymi nýburalækna, sérnámsgrunnslækna og hjúkrunarfræðinga á vökudeild. Eftir námskeiðið var mér boðið að verða leiðbeinandi á námskeiðinu. Ég tók þeirri áskorun og hef alls ekki séð eftir því. Ég er fyrsta ljósmóðirin í leiðbeinendahópnum, en bráðlega verðum við tvær þegar Klara Jenný Arnbjörnsdóttir, ljósmóðir á fæðingarvakt, bætist í hópinn.

Hluti af því að verða leiðbeinandi hjá Endurlífgunarráði Íslands er að sækja leiðbeinendanámskeið hjá ERC. Ég fór til Norrköping í Svíþjóð til að sækja námskeiðið, sem reyndist vera skemmtileg en krefjandi tveggja daga vinnustofa. Þessa tvo daga vorum ég og fleiri frá Íslandi í stífum æfingum í verklegri kennslu, að halda utan um umræður og leggja fyrir verkleg próf. Þessir dagar voru frábær undirbúningur fyrir leiðbeinendastarfið og hafa einnig styrkt mig í starfi og í hlutverki mínu sem umsjónarljósmóðir.

Á síðasta ári hefur ljósmæðrum sem ljúka NLS-námskeiðinu farið fjölgandi á öllum þjónustustigum og um landið allt. Það er dýrmætt fyrir okkur sem stétt að auka færni í endurlífgun nýbura og mun að mínu mati auka öryggi nýbura á öllum stigum þjónustunnar. Það er einnig mikilvægt að ljósmæður séu hluti af leiðbeinendahópnum, þar sem við erum sérfræðingar í umönnun fjölskyldna á meðgöngu, í fæðingu og í sængurlegu og höfum þannig heildræna sýn á barneignarferlið.

Ég hlakka til að hitta ykkur sem flestar á komandi NLS-námskeiðum, kæru starfssystur!

Hrólfur nýburalæknir og Anna hjúkrunarfræðingur á Vökudeild undirbúa kennslu.
Frá Norrköping í Svíþjóð.