Beint í efni

„Dóttir mín réttir svo oft fram lófa og sýnir mér hálfan heiminn – þar rúmast undur veraldar merkilega vel“ segir Ingibjörg Sigurðardóttir meðal annars um verk sitt sem prýðir forsíðu Ljósmæðrablaðsins að þessu sinni. „Fædd af mér inn í þennan heim, færir hún mig inn í sinn.“ Kæru ljósmæður, blaðið færir okkur í þetta sinn eins og eitt lófafylli af ljósmóðurfræðum, sögum, fréttum, pistlum og myndum, undir áhrifum ný­ afstaðinnar ráðstefnu norrænu ljósmæðrafélaganna.

Á bjartasta tíma ársins, rétt fyrir sumarsólstöður, stækkaði ljósmæðrafjölskyldan, eins og gjarnan gerist á þessum árstíma, þegar fjórtán nýjar ljósmæður braut­ skráðust frá Háskóla Íslands. Ljósmæðurnar kynntu meistaraverkefni sín á rannsóknardeginum í maí með miklum sóma og hefur Ljósmæðrablaðið tekið saman stutta útdrætti úr fjölbreyttum verkefnunum þeirra en bendum lesendum einnig á að hægt er að nálgast rannsóknarverkefnin í heild sinni inni á skemman.is, en sum þeirra eru þó lokuð tímabundið vegna rann­ sóknarhagsmuna.

Einn mikilvægur hlekkur í þekkingarsköpun er skráning gagna, sem einmitt var yfirskrift ljósmæðra­ dagsins þetta árið og sagt er frá í blaðinu. Fjölbreytt erindi voru haldin um skráningu frá mismunandi sjónarhornum og eftir hádegi var skipt yfir í það helsta sem er að gerast í brjóstagjöf og rætt um hvernig við getum bætt árangur hér á landi í samræmi við markmið Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Við hvetjum ljósmæður jafnframt til að kynna sér fæðingarparís, en verkefnið er nýtt samstarfsverkefni fæðingarvaktar og heilsugæslunnar. Verkefnið er unnið í tengslum við sérfræðinám Sigurveigar Óskar Pálsdóttur aðstoðar­ yfirljósmóður á Landspítala. Fæðingarparís er verkfæri fyrir konur á meðgöngu og í fæðingu til að stuðla að góðri fæðingu með sem fæstum inngripum. Í greininni er áhugaverð nálgun, en þar er verkefnið kynnt sem skref í átt að aukinni hugmyndafræðilegri samfellu í þjónustu við barnshafandi konur hérlendis. Þegar konur koma í fæðingu á fæðingarvaktina er fæðingar­ parís kunnugleg áminning um gagnleg bjargráð sem þær hafa þegar kynnt sér og vonandi notað á meðgöngu í samtali við sínar ljósmæður í mæðravernd.