Sem fyrr hafa margar áhugaverðar ráðstefnur verið í boði sem vakið hafa áhuga ljósmæðra og þar má sem dæmi nefna ýmis fróðleg innlend málþing nú á vormánuðum. Málþing styrktarfélagsins Lífs um kvenheilsu var haldið 12. mars og fagráð um ljósmæðraþjónustu á Landspítala stóð þann 10. apríl fyrir málþingi um áskoranir í fóstur erfða skimun (NIPT). Þann 5. maí, á alþjóðadegi ljósmæðra, stóð Þjóðminjasafnið fyrir málþinginu Meðganga og barneignir í 60 ár þar sem þjóðfræðingar tóku til máls ásamt Dr. Ólöfu Ástu Ólafsdóttur ljósmóður. Og að sjálfsögðu hélt Ljósmæðrafélagið alþjóðadaginn hátíðlegan með Ljósmæðradeginum, hinu árlega málþingi félagsins. Hann var í þetta sinn haldinn þann 9. maí og snerist dagskráin um tvö þemu, ljósmæðraskráningu og brjóstagjöf. Mikið var síðan um dýrðir í lok maí á Norðurlandaráðstefnu ljósmæðra sem haldin er þriðja hvert ár, í þetta sinn í Kaupmannahöfn. Fjöldi íslenskra ljósmæðra lagði leið sína á ráðstefnuna og íslenskar rannsóknarljósmæður voru áberandi með framlög sín, bæði á formi fyrirlestra og veggspjalda.
Næsta árið kennir ýmissa grasa í ráðstefnuhaldi um ljósmóðurfræði. Þar má meðal annars nefna að í september næstkomandi mun Nordic Marcé ráðstefna um geðheilsu í barneignarferlinu verða haldin í Turku í Finnlandi, auk þess sem hin þekkta árlega Normal Birth ráðstefna verður haldin í Bretlandi. Í október verður svo haldin Evrópuráðstefna um ljósmæðramenntun á eyjunni Möltu. Í júní árið 2026 verður blásið til ráðstefnu alþjóðasamtaka ljósmæðra, sem að þessu sinni verður haldin í borginni Lissabon í Portúgal. Ljósmæðrablaðið hlakkar til að sjá sem flestar íslenskar ljósmæður á suðrænum og seiðandi slóðum að ári.