Beint í efni

HermÍs – tækifæri til framþróunar í ljósmóðurfræði

HermÍs, nýlegt sameiginlegt færni- og hermisetur Háskóla Íslands og Landspítala er mikilvægt skref í þróun heilbrigðismenntunar á Íslandi. Setrið er vettvangur þar sem nemendur og heilbrigðisstarfsfólk geta lært og þjálfað klínísk viðfangsefni í öruggu og stýrðu umhverfi, þar sem áhersla er lögð á fag­mennsku, öryggi og samvinnu. Kennsla og þjálfun í setrinu skapar tækifæri til að efla hæfni, auka sjálfstraust og þannig bæta gæði heilbrigðisþjónustu.

Færni- og hermisetur byggja á þremur lykilþáttum. Í fyrsta lagi, hæfir og vel þjálfaðir kennarar. Í öðru lagi öflug kennsluaðstaða og þriðja lagi sérhæfður kennslubúnaður. Í HermÍs er lögð rík áhersla á að hermikennsla grundvallist á aðferðafræði fremur en tæknibúnaði, sem er ætlað að líkja eftir raunverulegum aðstæðum, aðgerðum eða inngripum í öruggu námsumhverfi, með leiðbeinanda án þess að heilsu skjólstæðings sé stefnt í hættu. Hermikennsla er gjarnan studd með tækni, leikmunum og sýndarsjúklingum til að herma sem best eftir raunheimum.

Ávinningur hermikennslu er margþættur og vel staðfestur í fjölmörgum alþjóðlegum rannsóknum. Kennsluaðferðin gerir þátttakendum kleift að æfa sjaldgæf en alvarleg viðfangsefni, endurtaka verklag og læra af mistökum án þess að hætta skapist fyrir skjólstæðing. Með því að sameina fræðilega þekkingu og verklega færni í raunhæfu samhengi, stuðlar hermikennsla að dýpri skilningi og betri ákvarðanatöku í klínísku starfi.

Ávinningur hermikennslu í ljósmóðurfræði

Líkt og í öðrum greinum heilbrigðisvísinda er hermikennsla í ljósmóðurfræði sérstaklega mikilvæg. Fagið einkennist af fjölbreyttum og stundum ófyrirsjáanlegum aðstæðum þar sem hraði, nákvæmni og fagleg samskipti geta skipt sköpum. Þó að flestar fæðingar gangi eðlilega fyrir sig, geta komið upp bráðatilvik sem krefjast tafarlausra viðbragða, svo sem axlarklemma, miklar blæðingar eftir fæðingu eða bráður keisaraskurður.

Hermikennsla gerir ljósmæðrum og nemendum kleift að æfa slík viðfangsefni í öruggu umhverfi þar sem hægt er að staldra við, ræða ákvarðanir og endurtaka ferli eins oft og þörf er á. Slíkt stuðlar að auknu öryggi í raunverulegum aðstæðum og bætir viðbragðsgetu þegar á reynir. Auk þess hefur verið sýnt fram á að hermikennsla eykur sjálfstraust þátttakenda, sem er lykilþáttur í því að takast á við krefjandi klínískar aðstæður.

Þverfagleg samvinna í HermÍs

Einn af meginávinningum HermÍs er möguleiki á þverfaglegri þjálfun. Í klínískum aðstæðum vinna ljósmæður gjarnan náið með öðru heilbrigðisstarfsfólki, þar sem árangursrík teymisvinna er lykilatriði þegar kemur að öryggi móður og barns. Í HermÍs er hægt að setja upp sviðsmyndir þar sem teymi æfa saman, með áherslu á samskipti, hlutverkaskiptingu og samhæfingu aðgerða. Slík þjálfun styrkir sameiginlegan skilning á verkferlum og eykur traust milli faghópa. Kennsluaðferðin hjálpar einnig til við að greina veikleika í kerfinu og finna leiðir til úrbóta áður en alvarleg atvik geta átt sér stað.

Í ljósmóðurfræði, þar sem aðstæður geta breyst hratt, er mikilvægt að allir í teyminu hafi sameiginlegan skilning á aðstæðum og hlutverk séu skýr. Í hermikennslu er hægt að æfa slíka þætti markvisst og fá endurgjöf á frammistöðu, og jafnvel taka ferlið upp og rýna í það í viðrun. Þjálfunin hefur því skýr áhrif á gæði þjónustu og öryggi skjólstæðinga.

Ávinningur fyrir ljósmæður og nemendur

Fyrir starfandi ljósmæður er HermÍs vettvangur símenntunar þar sem hægt er að viðhalda og efla klíníska færni. Með reglulegri þátttöku í hermikennslu geta ljósmæður lært nýjar aðferðir og styrkt viðbragðsgetu sína. Þetta er sérstaklega mikilvægt í ljósi hraðra breytinga í heilbrigðiskerfinu og aukinna krafna um gæði og öryggi.

Ljósmóðurnemi setur upp getnaðarvarnarlykkju í hermisetri.
Stella ljósmóðir kennir ljósmæðranemum í HermÍs.

HermÍs býður upp á möguleika fyrir nemendur í ljósmóðurfræði til að læra við hlið reynslumeira starfsfólks. Í stað þess að læra eingöngu í klínísku umhverfi, þar sem tími og aðstæður eru oft takmarkandi, geta nemendur tekið virkan þátt í hermingu þar sem kennsla og endurgjöf eru í forgrunni. Í slíkum aðstæðum fá nemendur tækifæri til að taka ákvarðanir, framkvæma inngrip og leiða aðgerðir undir leiðsögn sérfræðinga. Slík nálgun stuðlar að virkri þátttöku og dýpri námsupplifun. Jafnframt gefur það reyndari ljósmæðrum færi á að miðla þekkingu á markvissan hátt og styrkir þannig faglegt samfélag.

Fyrir nemendur má segja að HermÍs sé brú milli bóklegs náms og klínískrar reynslu. Þar fá nemendur tækifæri til að æfa sig í raunhæfum aðstæðum áður en þeir takast á við samskonar verkefni í klínísku starfi. Slíkt getur dregið úr kvíða og aukið öryggi nemenda þegar þeir hefja störf í raunheimum.

Niðurlag

Sú meginsýn sem unnið er út frá í HermÍs er að hermikennsla sé árangursrík og skilvirk kennsluaðferð sem eykur öryggi sjúklinga. Í sérhönnuðu færni- og hermisetri er hægt að kenna nemendum og heilbrigðisstarfsfólki flókin og margþætt viðfangsefni. Með virkri þátttöku ljósmæðra í hermikennslu sem þátttakendur, leiðbeinendur eða þróunaraðilar – geta ljósmæður haft áhrif á gæði menntunar og þjónustu til framtíðar. Þetta felur í sér tækifæri til að þróa nýjar kennsluaðferðir, efla rannsóknir á sviði hermikennslu og styrkja faglega stöðu ljósmæðra innan heilbrigðiskerfisins.

Með því að nýta möguleika sem HermÍs hefur upp á að bjóða til fulls, geta ljósmæður og nemendur þróað fagmennsku í öruggu og styðjandi umhverfi. Þannig stuðlar HermÍs ekki aðeins að betri menntun heldur einnig að bættri heilbrigðisþjónustu – sem er á endanum markmið okkar allra.

Höfundur er sérfræðingur í hjúkrun og forstöðumaður HermÍs.