Halla Ósk Halldórsdóttir heiðruð
Heiðranir starfsfólks Landspítala á ársfundi 2025
Heiðranir starfsfólks Landspítala á ársfundi 2025
Halla Ósk Halldórsdóttir, sérfræðiljósmóðir á fæðingarvakt, var heiðruð á ársfundi Landspítala vorið 2025 í flokknum „öryggi“. Halla Ósk útskrifaðist úr ljósmóðurfræði árið 1991 og hefur unnið á fæðingarvakt Landspítalans frá útskrift, ásamt því að sinna heimþjónustu og leysa af við ljósmóðurstörf í dreifðum byggðum landsins. Halla Ósk lauk meistaragráðu frá Háskólanum á Akureyri í heilbrigðisvísindum árið 2020 og lauk sérfræðinámi á Landspítala árið 2024.
Halla hefur verið í forsvari fyrir bráðanámskeið í fæðingarhjálp (PROMPT – PRactical Obstetric Multi-Professional Training) en þau miða að því að þjálfa lækna, ljósmæður, hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða í bráðatilfellum í fæðingarþjónustu. Þá hefur Halla kennt deildarlæknum, læknanemum og ljósmóðurnemum um hvaðeina sem tengist fæðingum, sérstaklega lestur fósturhjartsláttarrita. Við afhendingu á ársfundinum kom fram að Halla standi framarlega í starfi við sí- og endurmenntun ljósmæðra í skipulagi og kennslu og einnig sé hún mikil og góð fyrirmynd sem ljósmóðir á fæðingarvaktinni. Halla Ósk sagðist taka við þessari heiðrun af auðmýkt og þakklæti. Í hennar huga væru góð samskipti og samvinna lykillinn að öryggi og hún liti svo á að það væri ekki síður allt það góða samstarfsfólk, læknar, ljósmæður og sjúkraliðar, sem unnið hefðu með henni í gegnum tíðina sem verið væri að heiðra. Ljósmæðrablaðið færir Höllu Ósk innilegar hamingjuóskir með þessa verðskulduðu viðurkenningu.
