
Þá er Ljósmæðrafélag Íslands flutt í nýtt húsnæði að Safnatröð 3 á Seltjarnarnesi. Húsnæðið heldur mjög vel utan um okkur, aðstaðan er góð og við höfum góðan sal til afnota sem að okkar mati hentar starfsemi félagsins sérstaklega vel. Það má einnig taka fram að ljósmæðrum stendur til boða að fá salinn leigðan hjá Lyfjafræðingafélaginu á sanngjörnu verði.
Eins og alltaf er af nægu að taka þegar kemur að félagslífi ljósmæðra hér á Íslandi enda einstaklega öflugur hópur. Fagráð LSH hefur haldið sína reglulegu viðburði Rannsóknakaffi yfir vetrarmánuðina og stóð einnig fyrir málþingi í febrúar til heiðurs Ingibjörgu Eiríksdóttur ljósmóður.
Ljósmæðrafélagið hélt hið vinsæla nálastungunámskeið í febrúar og apríl í samstarfi við Guðlaugu Maríu sérfræðiljósmóður og var mikil ánægja með það eins og alltaf er. Félagið stóð einnig að Ljósmæðradeginum þann 8.maí síðastliðinn sem haldinn var á Hótel Selfossi. Um kvöldið var svo haldið veglegt ljósmæðrapartý eins og þau gerast best en skipulagningin var í höndum gestgjafanna, ljósmæðra HSU. Báðir þessir viðburðir voru einstaklega vel heppnaðir og fjöldi góðra fyrirlesara fluttu áhrifarík erindi sem hreyfðu við okkur flestum. Í lok dags var boðið upp á kynning frá námsbraut í ljósmóðurfræði þar sem farið var yfir sögu námsins og fyrirhugaðar breytingar á því. Að lokum voru pallborðsumræður þar sem ljósmæðrum gafst tækifæri til þess að koma með spurningar. Þátttaka á ljósmæðradeginum fór fram úr björtustu vonum en 131 ljósmóðir mætti á ráðstefnuna um daginn og 100 ljósmæður á skemmtidagskránna um kvöldið þar sem gleðin var við völd og svo ánægjulegt að sjá hve vel ljósmæður skemmtu sér saman. Ég vil nota tækifærið hér og þakka öllum þeim sem komu að undirbúningi og tóku þátt kærlega fyrir sitt framlag.
Af erlendu samstarfi er það helst að frétta að aðalfundur Evrópudeildar ICM var haldinn á Zoom í febrúar. Í því starfi hefur aðaláherslan nú verið á að hafa samstillt áhrif á þær fyrirhuguðu breytingar sem ESB vinnur að á Evrópureglugerð um ljósmæður.

ICM hefur verið mjög öflugt á því sviði og má til dæmis nefna að nú í lok júní stóð til að skila inn (líklega) síðustu athugasemdum til ráðsins og náðist að fá 151 umsögn fyrir ljósmæður. Ef af þessum breytingum verður mun það hafa lítil áhrif hér á landi þar sem við uppfyllum nú þegar þessa staðla í okkar námi og störfum sem sjálfstæð fagstétt.
EMA (European Midwives Association) hélt einnig fund í apríl á Zoom en þar var eingöngu farið yfir fjármál samtakanna þar sem verið var að breyta uppgjörsárinu og lá fyrir tillaga um hækkun aðildargjalda.
Aðalfundur Norðurlandafélaga ljósmæðra (NJF) var haldinn í Færeyjum 12. og 13. maí síðastliðinn. Eins og alltaf er það okkur svo mikilvægt samstarf enda starfsaðstæður mjög svipaðar á Norðurlöndum, að Grænlandi undanskildu. Töluverðar umræður sköpuðust um ljósmæðranámið og erum við litnar öfundaraugum með þær breytingar sem fyrirhugaðar eru á því hér á landi. Eins var umræða um þau vinnuskilyrði sem okkur er boðið að vinna við. Ljósmæður eru oft of fáar á vöktum og ná jafnvel ekki að vinna eftir gagnreyndri þekkingu. Eins var töluverð umræða um heimafæðingar og fæðingar án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks.
Ljósmæðrafélag Íslands bauð bæði fyrsta og annars árs ljósmæðranemum í heimsókn til okkar nú í vor þar sem við höfum loksins aðstöðu aftur til að taka vel á móti hópum.
Í október verðum við síðan með tvö GynZone námskeið, þar sem við fáum erlenda kennara til að koma og fara yfir allt það nýjasta varðandi greiningu og saumaskap á rifum, ásamt deyfingum.
Við erum einnig mjög spenntar fyrir rannsókn sem við stefnum á að hefja nú í haust á starfsumhverfi og líðan ljósmæðra. Þetta er mjög mikilvæg rannsókn fyrir okkur ljósmæður og við viljum hvetja allar starfandi ljósmæður til að gefa sér tíma til að taka þátt. Rannsóknin er unnin í samstarfi við Háskóla Íslands, Háskólann í Gautaborg og Háskólann í Borås.
Nú í júní mættu um 30 íslenskar ljósmæður til Lissabon í Portúgal á ráðstefnu á vegum ICM. Margar voru með erindi á ráðstefnunni eða kynntu rannsóknir sínar með veggspjaldakynningu. Þess má geta að ráðstefnunni bárust 2802 ágrip og má segja það mikil meðmæli með okkar fræðasamfélagi hversu margar íslenskar ljósmæður komu sínum rannsóknum á framfæri.


