Staðan í húsnæðismálum félagsins hefur takmarkað starfsemi Ljósmæðrafélagsins þetta árið. Námskeiðið Þegar @ölskylda fæðist var þó haldið tvisvar sinnum með dönsku kennurunum Janni Ammitzbøll, ljósmóður og sálgreini og Maiken Bjerg sálgreini og músík-list-fræðingi. Frábært námskeið sem gaf góð verkfæri og sáði mörgum fræjum fyrir okkar starf. Ljósmæðra-félagið kom líka að námskeiðunum Spinning babies í byrjun september og brjóstagjafanámskeiði sem var haldið í byrjun nóvember, en bæði þessi námskeið voru vel sótt. Því miður gátum við ekki boðið fram aðstöðu í húsnæði félagsins, en á komandi ári verður bót þar á.
Málþing um öryggi sjúklinga var haldið þann 17. september þar sem þemað var „Örugg heilbrigðis-þjónusta fyrir öll börn og nýbura“. Þar hélt Björk Áskelsdóttir ljósmóðir á vökudeild Landspítala erindi um nikótínneyslu á meðgöngu og áhrif þess á nýbura. Fyrirlesturinn fékk mikla fjölmiðlaathygli, enda vel unninn fyrirlestur og málefnið brýnt. Við ljósmæður þurfum að vera vel vakandi fyrir þessari auknu notkun nikótíns og bæta fræðslu til okkar skjólstæðinga. Félagið tók þátt í hátíðarhöldum í tengslum við 50 ára afmæli Kvennaverkfallsins þann 24. október síðast-liðinn. Ljósmæður voru beðnar um að endurgera píkuna sem var notuð í kjarabaráttunni 2018 og var Sunna María Helgadóttir ljósmóðir og listakona á fæðingarvakt Landspítala svo yndisleg að taka það að sér. Hrafnhildur Halldórsdóttir ljósmóðir í Björkinni stóð svo vaktina í sjálfri sögugöngunni, ásamt öðrum ljósmæðrum, og hélt utan um uppákomuna þar sem göngufólki var boðið að endurfæðast inn í betri og réttlátari heim. Félagið hefur verið í góðu samstarfi við Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Læknafélag Íslands og Sjúkraliðafélag Íslands. Það er gott að vera í nánu samstarfi við þessi félög um þau mál sem brenna sam-eiginlega á okkur og er þar efst á baugi að fá skilgreind raunhæf mönnunarviðmið í takt við þá starfsemi og verkefni sem við sinnum í dag á okkar starfsstöðvum.
Við erum enn að uppfæra tæknimál félagsins og nú þegar heimasíða félagsins og ljósmæðravefurinn okkar ljósmodir.is hafa verið uppfærð er komið að uppfærslu á Fylgju-appinu og erum við þar á loka-metrunum. Stefnt er nýju og uppfærðu Fylgjuappi í ársbyrjun 2026, sem og að rafrænt aðgengi Ljósmæðra-blaðsins verði sett í betri búning. Einnig hefur Ljós-mæðrafélagið ásamt Félagi heimaþjónustu ljósmæðra verið að vinna í því að fá inn rafræna skráningu á heimaþjónustum. Skráningarappið sjálft var tilbúið fyrir þó nokkru síðan en nú þegar þetta er skrifað bíðum við eftir því að Embætti landlæknis klári sinn hluta. Þá er gaman að segja frá því að nú hefur Milou, rafrænt kerfi fyrir skráningu og vistun fósturhjart-sláttarrita, verið tengt inn á flestar fæðingarstofnanir landsins. Kvenfélagasamband Íslands fór af stað með söfnun í tilefni af 90 ára afmæli sínu, þar sem safnað var fyrir tækjabúnaðnum með það í huga að auka öryggi fæðandi kvenna á landsbyggðinni.
Af erlendu samstarfi er það helst að frétta að nú er unnið að uppfærslu á Evrópulöggjöfinni um ljósmæður. Tímabært var að uppfæra reglugerðina en sú vinna hefur gengið hægt. Mikill tími hefur farið í að sameina ljósmæðrafélög í Evrópu, það hefur þó gengið vel og ICM að mestu tekið það hlutverk að sér. Fyrirséð er að breytingarnar koma til með að hafa lítil ef nokkur áhrif hér á landi, þar sem ljósmæðranámið á Íslandi er sterkt, uppfyllir alla staðla og er að mörgu leyti fyrirmynd annarra landa.
Ljósmæðrahópar hafa lagt land undir fót og farið í margar spennandi ferðir á árinu. Hópur ljósmæðra á sængurlegudeild Landspítalans fór til Varsjár í Póllandi og skoðaði þar starfsumhverfi ljósmæðra. Nokkrar ljósmæður fóru á spennandi ráðstefnur í Dubai, aðrar til Hollands og nokkarar ljósmæður á fósturgreiningar-deildum landsins fóru í námsferð til London. Eins hefur fagráð LSH um ljósmæðraþjónustu haldið nokkrar áhugaverðar málstofur með fjölbreyttum erindum. Þar sem ljósmæður eru duglegar að stunda sí- og endurmenntun og tileinka sér allt það nýjasta í fræðunum er líklega alls ekki tæmandi talning hér á öllu því áhugaverða sem ljósmæður hafa tekið sér fyrir hendur nú nýverið.
Gaman væri að fá upplýsingar frá ykkur um skemmtilegar ráðstefnur og/eða námskeið sem þið vitið um svo hægt sé að auglýsa þær á vefnum okkar. Vefurinn er okkar allra og því fleiri sem taka þátt í að halda honum við, því betri verður hann.




