Beint í efni

Fæðingarsögur feðra

Í nóvember síðastliðnum gáfum við Ísak Hilmarsson, eiginmaður minn, út bókina Fæðingarsögur feðra. Bókin er afrakstur vinnu síðustu sex ára en við byrjuðum að safna sögum á feðradaginn í nóvember árið 2019. Við áttum ekki von á þessari góðu þátttöku í upphafi þessa ferðalags en vorum heldur betur lánsöm með það hversu margir feður vildu leggja okkur lið með sínum sögum. Við erum þeim ótrúlega þakklát fyrir að treysta okkur fyrir sögunum og hjálpa okkur þannig að gera bókina að veruleika.

Bókin inniheldur rúmlega 60 sögur frá feðrum af fæðingum barna þeirra. Sögurnar í bókinni eru allar nafnlausar en við hverja sögu er skráð fæðingarár barns og föður ásamt fæðingarstað til að lesandinn fái örlitla innsýn í aðstæður hverju sinni. Sögurnar spanna breitt tímabil en elsta sagan er frá árinu 1956 og sú nýjasta frá árinu 2024. Bókin er 240 blaðsíður og er prentuð hjá Litlaprenti í Kópavogi.

Tilgangur bókarinnar er að varpa ljósi á sýn og upplifun feðra af fæðingum barna sinna. Það er von okkar að bókin nýtist verðandi feðrum sem og öllum þeim sem hafa áhuga á fæðingum. Bókina teljum við einnig sérstaklega áhugaverða fyrir ljósmæður og annað heilbrigðisstarfsfólk sem sinnir barneignar-þjónustu þar sem sögurnar lýsa vel því sem fer í gegnum huga feðra í gegnum allt barneignarferlið. Sumir feður óskuðu eftir leiðbeiningum um hvers eðlis sagan ætti að vera, og þá var þeim bent á að þeim væri algjörlega frjálst að skrifa sína frásögn hvort sem hún fjallaði um meðgöngu, fæðingu, sængur-legu eða jafnvel tengslamyndun eftir fæðingu. Að öðru leyti var engin uppskrift að söguþræði. Sögurnar í bókinni gerast vítt og breitt um landið og einnig eru sögur frá íslenskum feðrum sem eignuðust barn í Noregi, Svíþjóð og Þýskalandi svo dæmi séu tekin. Sögurnar eru jafn mismunandi og þær eru margar og leiða lesendur í gegnum allan tilfinningaskalann við reynsluna af því að verða foreldri. Til að brjóta upp formið ákváðum við að hafa einnig litla fróðleiksmola inn á milli sagna til að útskýra á einföldu máli ýmis hugtök sem við í fæðingarþjónustunni þekkjum vel en feðurnir öllu minna.

Þann 8. desember síðastliðinn héldum við vel heppnað útgáfuhóf í Höfuðstöðinni þar sem fjöldi fólks fagnaði með okkur útgáfu bókarinnar. Við viljum þakka öllum þeim sem gáfu sér tíma til að koma og fagna með okkur og jafnframt viljum við þakka ljós-mæðrum kærlega fyrir frábærar viðtökur á bókinni og stuðning í gegnum Karolina Fund. Það gleður okkur einnig mjög mikið að segja frá því að fyrsta upplag af bókinni er uppselt og glóðvolg sending af bókum úr prentsmiðjunni er væntanleg til útgefenda fyrir jól.

Með ósk um gleðileg jól og gæfu og frið á nýju ári, Gréta María Birgisdóttir, ljósmóðir.

Greinarhöfundur heldur á bókinni Fæðingarsögur feðra.
Frá útgáfuhófi bókarinnar. Innpökkuð bókin í sér-hönnuðum gjafapappír eftir Halldór Baldursson.
Höfundar bókarinnar, Ísak Hilmarsson og Gréta María Birgisdóttir, í útgáfuhófinu.