„Ég ráðlegg ykkur að fylgjast með ykkar eigin skynfærum. Fylgist með því sem er að gerast í ykkar eigin líkama og huga.“
Viðtal við Claire Eccleston ljósmóður og Spinning Babies kennara
Viðtal við Claire Eccleston ljósmóður og Spinning Babies kennara
Claire Eccleston er ein þeirra ljósmæðra sem bera með sér undarlega ró og dýpt – ró sem líklega á rætur í áralanga reynslu hennar af fæðingum utan sjúkrahúsa, nærveru og hlýju. Hún hefur starfað sem ljósmóðir í rúmlega tvo áratugi, bæði heima í Ástralíu, á Nýja Sjálandi og annars staðar í heiminum, en á starfsferli sínum fundið fyrir djúpri tengingu við lífeðlisfræðilega fæðingu og listina sem hún kallar einfaldlega Birth Craft. Í nálgun hennar sameinast forn viska, líkams-þekking og virðing fyrir fjölskyldum og frásagnir hennar af starfsferlinum bera með sér fallega blöndu af ástríðu hennar, auðmýkt og virðingu fyrir handverki ljósmóðurinnar í gegnum aldirnar.
Ljósmæðrasamfélagið á Íslandi hefur verið þeirrar gæfu aðnjótandi að njóta krafta Claire síðastliðið ár, en hún hefur komið hingað til lands og kennt tvö námskeið á vegum Spinning Babies við góðan orðstýr ljósmæðra. Í síðasta jólablaði Ljósmæðrablaðsins var umfjöllun um fyrsta námskeiðið sem haldið var hér á landi en að þessu sinni verður Claire sjálf tekin tali og við forvitnumst um þessa dularfullu konu.
Hvenær og hvers vegna ákvaðstu að verða ljósmóðir?
Mamma mín var ljósmóðir og brjóstagjafaráðgjafi. Ég ólst upp við að sjá hana lesa um ljósmóðurfræði og stalst stundum í bækurnar hennar, auk þess hlustaði ég endalaust á hana gefa konum ráð um brjóstagjöf í gegnum síma. Frá fjórtán ára aldri vissi ég að ævistarf mitt yrði helgað konum, að ég myndi vinna eitthvað tengt heilandi kvenorku. Þegar ég var sextán ára las ég svo bókina Spiritual Midwifery eftir Inu May Gaskin og þá vissi ég að framtíð mín væri ráðin. Líkami minn þráði líka að ganga með barn.
Ég heillaðist af heilagleika fæðingarinnar — hvernig lífið og dauðinn takast á og þessari ábyrgð og berskjöldun. Ég naut þess að fá að elska fólk í gegnum þennan heilagleika, eða eigum við frekar að segja yfirnáttúrulega atburð — og að fá þetta tækifæri til að standa við hlið konu með djúpri lotningu. Mér fannst yndislegt að vera nálægt einhverjum sem var með barn á brjósti, eða jafnvel bara að sjá myndir af brjóstagjöf. Fyrstu tvær fæðingarnar sem ég var viðstödd voru í frumskóginum í Ástralíu. Þetta voru heimafæðingar þar sem tvíburar komu í heiminn. Ég var þarna í upphafi míns ferils og fylgdi heima-fæðingarljósmóðurinni Elizabeth Moen. Við vorum bara tvær við fæðingarnar. Ég hafði stuttu áður lesið frábæra bók Elizabeth Davis, Heart and Hands. Þetta var dásamleg upplifun, snerti mig beint í hjartastað.
Ég byrjaði ferilinn sem dúla, en fann að mig langaði að axla ábyrgðina sem fylgir því að vera ljósmóðir. Mig langaði til að hafa þessa færni, að geta endurlífgað barn eða stöðvað blæðingu. Mig langaði líka að styðja við konur sem velja leiðir utan ríkjandi kerfis. Þess vegna valdi ég heimafæðingar. Mig langaði að nota hæfileika mína, líkama minn og stöðu til að styðja við þessa hugmyndafræði um áreynslulausar eðlilegar fæðingar, sem eru í höndum fjölskyldunnar sjálfrar og að ljósmóðurþekkingin, færni okkar og staða, myndi styðja konur í að halda sjálfsákvörðunarrétti sínum yfir eigin líkama.
Mig dreymdi um að flytja frá Ástralíu til Nýja-Sjálands til að læra og starfa við heimafæðingar. Tvisvar reyndi ég að hefja ljósmóðurfræðinám, en ég varð ólétt og fékk alvarlega hyperemesis. Við fluttum svo til Nýja-Sjálands árið 2005 og ég byrjaði loksins í ljósmóðurfræðináminu. Ég var svo heppin að fá að læra af frábærum, hæfileikaríkum heimafæðingar-ljósmæðrum sem bjuggu yfir þessari stóísku ró og voru með dýrmæta reynslu, meðal annars frá af-skekktum stöðum sem mér fannst svo heillandi.

Áttir þú þér fyrirmyndir eða mentora?
Já, ég á margar! Þessi heilagleiki fæðingarinnar sjálfrar heldur mér stöðugt í auðmýkt gagnvart sköpunarverkinu, eins allar fjölskyldurnar sem hafa treyst mér fyrir reynslu sinni. Mamma mín er stór fyrirmynd í lífi mínu. Elizabeth Moen, þessi ótrúlega kraftmikla norska kona sem ferðaðist á mótorhjóli á milli fæðinga í afskekktum byggðum Ástralíu. Jenny Blyth, traditional ljósmóðir (ef svo má segja) og líkamsmeðferðaraðili (body worker). Jenny hefur haft gífurleg áhrif á mig, svo jarðbundin og klár og fylgir sínu hyggjuviti og skynsemi. Jenny hefur ekki aðeins haft áhrif á það hvernig ég nálgast fæðingar, heldur er hún líka fyrirmynd varðandi það hvernig ég vil lifa lífinu. Ljósmæðurnar í Waikato Homebirth Collective, þar á meðal Maggie Banks og Heather Muriwai. Heather, sem er maórí-ljósmóðir, var formlegur leiðbeinandi minn eða umsjónarljósmóðir þegar ég útskrifaðist. Hún styður maórífjölskyldur í að viðhalda eigin hefðum og þekkingu, og ég var svo lánsöm að fá að þessa innsýn, að sinna maórífjölskyldum og kynnast þeirra visku.
Ég lít svo á að það hafi verið mín gæfa að fá þetta tækifæri að starfa að heimafæðingum með þessum frábæra hópi heimafæðingarljósmæðra. Ég fékk stuðning sem er nauðsynlegur og svo mikilvægt að geta haft samráð og hringt og ráðfært sig varðandi aðstæður, tilfinningu eða næstu skref. Við vorum venjulega tvær ljósmæður saman við heima-fæðingar. Oft var langt að fara á næsta sjúkrahús, svo það skapaðist sterk samkennd.
Ég hef líka sjálf leiðbeint nýútskrifuðum ljósmæðrum og kennt handleiðslu síðastliðin ellefu ár. Handleiðsla er mér afar mikilvæg, bæði að veita hana, en ekki síður að þiggja. Með því varðveitum við okkar eigið handverk, tungumál og ljósmóðurlistina.

Hvar hefur þú starfað sem ljósmóðir?
Starfsreynsla mín er fjölbreytt, en ég hef aðallega sinnt fæðingum og margvíslegri kennslu. Síðastliðin 23 ár hef ég aðallega starfað með fjölskyldum sem velja heimafæðingu, oft í dreifbýli eða í afskekktum sveitum landsins. Ég sinni samfelldri þjónustu frá sjöttu viku meðgöngu og fylgi fjölskyldum til sjöttu viku eftir fæðingu, en mæðravernd fer aðallega fram á heimilum fólks. Nýsjálenska ríkið greiðir fyrir þessa þjónustu sem er frábært. Í Nýja-Sjálandi eru miklar andstæður. Þar er mikil fátækt á sumum stöðum, heimilisofbeldi er algengt og ýmis konar fjölskylduvandamál. En við erum líka samfélag þar sem ríkidæmi og fegurð eru til staðar í orðsins fyllstu merkingu.
Á Nýja Sjálandi er líka sterk löggjöf sem tryggir fólki rétt til að hafna meðferð, spyrja spurninga og fulls yfirráðs yfir eigin líkama (Health and Disability Consumer Code of Rights). Þessi löggjöf styður ljós-mæður í að virða sjálfsákvörðunarrétt kvenna og fjölskyldna þeirra.
Ég hef unnið á ólíkum stöðum, oft á litlum sjálf-stæðum fæðingarheimilum/einingum í dreifbýli, á Waiheke-eyju og í suðurhluta landsins svo dæmi séu nefnd. Oft erum við tvær á vakt og stundum í allt að þriggja klukkustunda fjarlægð frá næsta sjúkrahúsi. Ég nýt þess að standa á eigin fótum og einfaldlega bregðast við því sem að höndum ber; fjölbyrja með sitt tíunda barn sem hefur ekki sinnt mæðravernd, kona með neyslusögu, fæðing eftir keisara með sögu um blæðingu, eða erfið fæðing á gömlum sveitabæ þar sem allt getur gerst. Ég elska þennan frumkraft fæðingarinnar og að geta nýtt reynslu og þekkingu til að takast á við allt fæðingarlitrófið með konunni. Ég hef einnig starfað sem sjálfboðaliði í Vanúatú, Kambódíu og Laos.
Ég hef líka reynslu af því að vinna sem ljósmóðir á sjúkrahúsi, þar sem ljósmæður sinna fæðingunni og fæðingarlæknir er á bakvakt ef á þarf að halda. Ég sjálf kýs frekar að sinna heimafæðingum, eða að vinna á fæðingarheimilum, en ég ber djúpa virðingu fyrir ljósmæðrum sem starfa á sjúkrahúsum.
Svo hef ég líka unnið við kennslu. Ég hef til dæmis kennt meðgöngu-, fæðingar- og jóganámskeið fyrir verðandi mæður í 23 ár. Ég kenni bráðaæfingar/ bráðaviðbrögð fyrir ljósmæður á Nýja-Sjálandi og hef ferðast til dæmis til Mexíkó, Gvatemala og Póllands með þessi námskeið. Ég hef líka kennt saumatækni fyrir spangaráverka og Birth Craft™, sem er níu mánaða ferðalag varðandi listina sem fólgin er í nær-veru og yfirsetu fæðingar. Ég kenni líka námskeið tengt heilun sára eða sársauka sem situr í líkamanum, kynvitund (somatic sexology), höfuðbeina- og spjald-hryggsmeðferð og WombCraft™ fyrir konur og pör.

Hvernig kynntist þú Spinning Babies?
Frá því ég byrjaði að vinna sem ljósmóðir hef ég alltaf verið upptekin af því að vinna með líkamann, að konan þekki líkama sinn. Mér var líka kennt að þetta skipti miklu máli. Heimafæðingarljósmæðurnar sem ég lærði af voru frábærar í þessu og höfðu mikla reynslu. Þær kenndu mér margar hagnýtar aðferðir til að hjálpa börnum að fæðast þegar fæðingin dregst á langinn og virðist vera komin í þrot.
Árið 2013 hélt ég námskeið undir yfirskriftinni Sunny Side Up um hvernig hægt er að greina fram-höfuðstöðu og hvað sé til ráða í slíkum fæðingum. Kveikjan af námskeiðinu var aukin þörf fyrir flutning og inngrip þegar börn ákveða að velja sér þessa leið í heiminn. Ég gaf líka út bækling um þetta efni, sem heitir einmitt Sunny Side Up.
Ég heyrði fyrst um Spinning Babies® í gegnum netið og Jenny Blyth en Jenny var vinkona Gail. Ég hitti svo sjálf Gail Tully, stofnanda Spinning Babies®, á ráðstefnu í Ástralíu árið 2015. Ég var djúpt snortin af nálgun hennar,hvernig hún miðlaði flóknum lífeðlis-fræðilegum hugmyndum af auðmýkt og virðingu fyrir líkamanum, konunni og fjölskyldum. Gail sameinaði þessa fornu dýpt og visku og bauð upp á nýja sýn á fæðinguna. Ég rétti henni hikandi og feimin þetta litla hefti mitt. Ég held samt að það hafi verið Jenny sem lagði til að ég myndi kenna Spinning Babies®, þar sem ég hefði þá reynslu, áhuga og þekkingu sem til þarf. Ég er óendanlega þakklát fyrir að fá tæki-færi til að miðla þessari nálgun — physiology before force — notum lífeðlisfræðina áður en til inngripa kemur. Það er heiður að fá að kenna öllum þeim sem koma að fæðingum fremur einfaldar, áhrifaríkar aðferðir sem bæta líðan á meðgöngu og geta auðveldað fæðinguna og vonandi stuðlað að betri fæðingarreynslu. Við vitum öll hvað það skiptir miklu máli til framtíðar.
Geturðu sagt okkur frá fæðingum þar sem Spinning Babies-aðferðir nýttust vel?
Það kemur strax upp í hugann tvíburafæðing. Þetta var annað og þriðja barn móðurinnar. Hún var 40 vikur gengin og kaus að fæða á sjúkrahúsi. Móðirin hafnaði síritun fósturhjartsláttar og ýmsu hefðbundnu spítala-verklagi og vildi ekki heldur mænurótardeyfingu. Hún var á spítalanum í einn og hálfan tíma og fæddi fyrra barnið á gólfinu á hnjánum. Þegar ég hlustaði á hjartslátt seinna barnsins var hann um 80 slög. Ég bað hana að fara upp í rúm og hún samþykkti innri skoðun. Barnið var hátt og bar skakkt að, höfuðið til hægri, alls ekki í grindinni. Ég kallaði á aðstoð og inn kom þessi fallega ljósmóðir og fæðingarlæknir með í för. Móðurpúlsinn var 100 slög og hjartsláttur barnsins 80. Fæðingarlæknirinn vildi setja upp elektróðu en við vissum að við vorum að hlusta á aðskilinn hjartslátt. Við sáum líka að barnið þurfti aðstoð og það strax.

Ég bað móðurina að rísa upp, krjúpa á hné og framkvæma abdominal lift and tuck-aðferðina og rembast. Í næstu hríð sást bóla í höfuð barnsins, í næstu hríð þar á eftir fæddist kollurinn og svo barnið í þeirri þriðju. Lift and tuck aðferðin var árangursrík, einföld og örugg. Það hefði tekið mun lengri tíma að hlaupa í keisaraskurð. Bæði börnin voru um þrjú og hálft kíló. Ég hef notað þessa aðferð oftar síðan með góðum árangri, með seinni tvíbura, með höfuð hátt í grindinni.
Hver eru heilræði þín til nýútskrifaðra ljósmæðra?
Ég ráðlegg ykkur að fylgjast með ykkar eigin skynfærum. Fylgist með því sem er að gerast í ykkar eigin líkama og huga. Hvað eruð þið að hugsa í fæðingunni og hvaða orka er í kringum fæðinguna? Líkaminn okkar er öflugasta verkfærið sem við höfum í fæðingum. Hann safnar upplýsingum og getur svarar okkur af kærleika og oft af mikilli nákvæmni um það sem er að gerast.
Vertu í sambandi við skynfærin þín. Tengdu saman lyktarskyn, snertingu, heyrn og sjón við allar þessar lúmsku breytingar þegar eyrun sperrast og maginn mýkist. Ég held að ef við leggjum of mikið traust á tæknina þá munu margir þessara næmu hæfileika, sem stundum er kölluð ljósmóðurlistin, glatast.
Líkamar okkar búa líka yfir háþróaðri tækni. Í líkama ljósmóðurinnar og í líkama hinnar fæðandi konu býr mikil viska. Þegar ég sjálf hlusta á minn líkama í fæðingum er ég betur í stakk búin til að hlusta og skynja taktinn og skilaboðin frá líkama konunnar og barnsins. Það hjálpar mér að fylgja innsæinu og skynja hið stóra samhengi fæðingarinnar og lífsins!
Hver er uppáhaldsiðja þín þegar þú ert ekki að sinna ljósmóðurlistinni?
Ég elska að stíga villtan dans, fara í gönguferðir, knúsa barnabörnin mín og að eiga góðar stundir með börnunum mínum. Mér finnst dásamlegt að synda í sjó og ám og sameinast frumkraftinum sem býr í skóginum. Ég elska líka að leggjast í mjúkt grasið og drekka í mig fegurð blómanna.
Hvernig finnur þú jafnvægi milli fjölskyldulífs, vinnu og þess að finna tíma fyrir sjálfa þig?
Ég er enn að leita svara við þessari spurningu ♥