Beint í efni

Breytt stjórnsýsluframkvæmd fyrir ljósmæður sem stefna að sérfræðileyf

Valgerður Lísa Sigurðardóttir

Embætti landlæknis tilkynnti þann 4. mars síðastliðinn um breytta stjórnsýsluframkvæmd við veitingu sérfræðileyfa í ljósmóðurfræði. Breytingin snýr að túlkun á skilyrðum um sérfræðimenntun og hefur verulega þýðingu fyrir þær ljósmæður sem hyggjast sækja um sérfræðileyfi á næstu árum. Tilkynninguna í heild sinni má finna á vef Embættis landlæknis (1).

Ljóst er að breyting þessi hefur áhrif á framkvæmd við veitingu sérfræðileyfa ljósmæðra og því mikilvægt að skoða þýðingu þess fyrir ljósmæðrastéttina, sérstaklega þær ljósmæður sem eru að íhuga framhaldsnám og/eða starfsþróun. Þess má geta að námsbraut í ljósmóðurfræði gerði formlegar athugasemdir við tilkynninguna en þær snerust aðallega um tímarammann sem gefinn er til að sækja um sérfræðileyfi samkvæmt eldra fyrirkomulagi.

Meginbreytingin – hvað felst í henni?

Hingað til hefur verið viðurkennt að ljósmæður sem luku kandídatsnámi og bættu síðar við sig 48 ECTS meistaranámi í ljósmóðurfræði gætu byggt umsókn um sérfræðileyfi á þeirri menntun, að loknu tveggja ára 100% starfi á því sérsviði sem umsóknin tekur til. Með hinni nýju framkvæmd er þessi túlkun breytt þannig að krafa verður um að það nám sem liggur til grundvallar sérfræðileyfi verði sérhæft framhaldsnám sem tekið er að loknu því námi sem veitir starfsleyfi sem ljósmóðir

Hverjir verða helst fyrir áhrifum?

Þessi breyting hefur mismunandi áhrif eftir stöðu hverrar og einnar ljósmóður. Ljósmæður sem þegar hafa hafið meistaranám að loknu kandídatsnámi eða hyggjast hefja slíkt nám haustið 2026 geta, samkvæmt bráðabirgðaákvæði, sótt um sérfræðileyfi á grundvelli eldri framkvæmdar til 31. desember 2029. Þær ljósmæður sem lokið hafa meistaranámi í ljósmóðurfræði til starfsréttinda þurfa að horfa til frekara framhaldsnáms (t.d. sérhæfðs meistara- eða doktorsnáms) til að uppfylla skilyrði sérfræðileyfis.

Tímaramminn skiptir hér verulegu máli því eins og fram kemur hér ofar þarf ljósmóðir að hafa starfað í fullu starfi á tilteknu sérsviði að lágmarki í tvö ár að meistaranámi loknu til að geta sótt um sérfræðileyfi.

Áhrif á starfsþróun ljósmæðra

Þessi breyting kallar á endurskoðun á skipulagi sérfræðimenntunar og starfsþróunar innan ljósmóðurfræða. Með nýrri túlkun verður meiri aðgreining milli grunnmenntunar og sérfræðimenntunar ljósmæðra, aukin krafa um sjálfstætt framhaldsnám umfram starfsréttindanám og nauðsyn á skýrari stefnu um uppbyggingu sérhæfðrar þekkingar innan fagsins.

Námsbraut í ljósmóðurfræði telur mikilvægt að skilyrði fyrir veitingu sérfræðileyfa séu skýr, gagnsæ og fyrirsjáanleg þannig að ljósmæður geti tekið upplýstar ákvarðanir um nám sitt og starfsþróun. Námsbrautin hvetur ljósmæður sem hafa hug á sérfræðileyfi til að kynna sér þessar breytingar vel og meta stöðu sína með hliðsjón af þeim. Sérstaklega er mikilvægt að huga tímanlega að vali á framhaldsnámi, leita ráðgjafar um mögulegar námsleiðir og fylgjast með frekari þróun mála, þar á meðal endurskoðun reglugerðar um menntun og réttindi ljósmæðra. Reglugerðin er nú í endurskoðun og hefur námsbrautin unnið með heilbrigðisráðuneytinu, ásamt Ljósmæðrafélagi Íslands, að breytingum á henni sem miða að því að efla sérfræðimenntun og auka gagnsæi við veitingu sérfræðileyfa ljósmæðra.

Að lokum

Breytt stjórnsýsluframkvæmd markar tímamót hvað varðar leiðir ljósmæðra til sérfræðileyfis. Þótt markmiðið sé að skýra kröfur og styrkja faglega umgjörð, er ljóst að breytingin hefur víðtæk áhrif á ljósmæður sem eru á leið inn í eða í miðju meistaranámi og hyggjast sækja um sérfræðileyfi. En um leið má sjá tækifæri til markvissrar endurskoðunar á uppbyggingu sérfræðimenntunar ljósmæðra til framtíðar. Þar þarf að tryggja bæði skýrar námsleiðir og raunhæft aðgengi að sérfræðileyfi samhliða því að viðhalda háum faglegum kröfum. Námsbraut í ljósmóðurfræði hyggst vinna áfram í að þróa umgjörð framhalds- og sérfræðimenntunar í takt við breytta stjórnsýsluframkvæmd og þarfir barneignarþjónustunnar.

Heimildir

1. Embætti landlæknis: https://island.is/frett/tilkynning-umbreytta-stjornsysluframkvaemd-serfraedileyfi-i-ljosmodurfraedi