Aðalfundur Ljósanna var haldinn 14. mars 2026 í nýjum húsakynnum Ljósmæðrafélagsins að Safnatröð á Seltjarnarnesi, í samkomusal Lyfjafræðisafnsins. Unnur Berglind Friðriksdóttir, formaður LMFÍ, sagði í upphafi fundar frá sögu hússins og ástæðu þess að félagið er komið með skrifstofu sína þangað.
Fundurinn hófst með hefðbundnum aðalfundarstörfum og formaður, Hildur Kristjánsdóttir las skýrslu stjórnar sem fer hér á eftir:
Árið 2025 var öðruvísi en við eigum að venjast. Ekki tókst að halda aðalfund þar sem húsnæðið í Borgartúni var ekki í boði. Tveir stjórnarfundir voru haldnir og tölvusamskipti milli stjórnarmeðlima voru allnokkur.
Nokkuð ber á því að ljósmæður hafi ekki samband til að breyta sínu póstfangi og hvet ég þær sem ennþá eru með póstfang hjá vinnuveitanda að muna eftir að breyta því þegar þær hætta að vinna. Félagsmenn hafa verið hvattir til að hafa samband ef þeir fá ekki tölvupóst. Hægt er að láta vita um það á facebooksíðu hópsins „Ljósurnar“, eða á tölvupóstfangið: hildurkr@simnet.is
Ferðanefndin, sem í voru Ástþóra Kristinsdóttir, Guðlaug Pálsdóttir og Anna Eðvaldsdóttir, (valin kona í hverju rúmi), hefur nú starfað í rúm þrjú ár og skipulagt mjög ánægjulegar óvissuferðir, þá síðustu á síðasta ári, en þá var farið í vel heppnaða ferð til Vestmannaeyja. Ferðin er alltaf farin fyrsta miðvikudag í júní. Því miður lést Anna Eðvaldsdóttir á árinu og minnumst við hennar og hennar góðu verka með hlýju og eftirsjá. Vorferðin var farin þann 3. júní s.l. og að þessi sinni um Suðurland.
Ingibjörg Eiríksdóttir og Þóra Filippusdóttir hafa endurvakið gönguferðir ljósmæðra og er ánægja með þetta framtak. Oftast hefur tekist að sníða gönguferðirnar á þá vegu að hægt er að hittast á kaffihúsi að lokinni göngu og hafa því ljósur sem ekki fóru í gönguna getað mætt þangað. Tillögur að gönguferðum eru vel þegnar og hafið endilega samband við Þóru og/eða Ingibjörgu ef þið lumið á skemmtilegri gönguferð sem helst gæti lokið með kaffihúsferð.
Síðustu tvö haust höfum við haft jólahlaðborð okkar í Garðaholti. Laugardaginn 23. nóvember 2025 hittumst við í annað sinn í Garðaholti og fengum mat og alla þjónustu þar. Rúmlega 50 ljósmæður mættu og var glatt á hjalla og afar góður matur. Dagur Hjartarson rithöfundur kom og las úr bók sinni Frumbyrjur við góðar undirtektir. Stefnt er að því að hafa sama hátt á í ár og hittast laugardaginn 24. nóvember í Garðaholti.
Ljósmæðrafélag Íslands hefur styrkt starfsemi Ljósanna og þá sérstaklega ferðanefndina af miklum rausnarskap og erum við afar þakklátar fyrir það. Ekki var stjórnarkjör á síðasta ári, en nú hættir Ólöf Þóra Sveinbjörnsdóttir í stjórninni og við munum sakna hennar.
Aðalfundi var slitið klukkan 14 og að honum loknum kom Sigríður Kristín Þorgrímsdóttir, sagnfræðingur og rithöfundur og las úr bók sinni Piparmeyjar. Auk fróðleiks um Fröken Thoru sem hún fjallar mest um í bók sinni, fengum við gott yfirlit yfir sögu einhleypra kvenna á Íslandi.
