Beint í efni

Þakklæti

Þegar ég sest niður til að skrifa þennan pistil er þakklæti mér efst í huga. Ég er nýkomin heim frá Portúgal þar sem ég sótti aðalfund Alheimssamtaka ljósmæðra, International Confederation of Midwives (ICM) og ráðstefnu á þeirra vegum í kjölfarið. Á aðalfundinum sjálfum voru ansi mörg laus sæti sem flest voru merkt hinum og þessum ríkjum Afríku. Svo mörg voru auðu sætin að umræður sköpuðust um hver ástæða fyrir fjarveru svo margra ríkja gæti verið. Að morgni þriðja dags aðalfundar kom ástæðan svo í ljós – þeim hafði verið meinað um vegabréfsáritun og ekki hleypt inn í landið. Það var strax hafin undirskriftasöfnun þeim til stuðnings með hvatningu til stjórnvalda um að endurskoða synjunina en margar þessara ljósmæðra höfðu einnig átt að vera með erindi á ráðstefnunni. Að því er ég best veit höfðu athugasemdir okkar ekki áhrif á ákvarðanir stjórnvalda, en fjallað var um málið í þarlendum fréttum þannig að um það var rætt.

Hluti af hefðbundnum aðalfundarstörfum ICM eru samþykktir á ýmsum stefnum, yfirlýsingum og ályktunum sem samtökin gefa út. Allar upplýsingar um málefni fundarins lágu fyrir áður en fundur hófst og við yfirferð sá ég ekkert sem mér fannst ástæða til að gera athugasemdir við. Á fundinum sjálfum var svo ákveðið að draga til baka og vinna betur með yfirlýsingu varðandi frumbyggjaljósmæður. Nú verð ég að játa að þetta er málefni sem ég hafði greinilega ekki fullan skilning á og sá ekkert athugavert við það að draga hana til baka og vinna betur. Ég gerði mér enga grein fyrir því hversu mikil áhrif frestun yfirlýsingarinnar myndi hafa á þennan fámenna hóp ljósmæðra. Hefði ég skilið þá hversu mikilvægt þetta mál var fyrir þær hefði ég líklega hugsað málið á annan hátt áður en ég greiddi því atkvæði mitt. Eftir að heim var komið höfum við, formenn í NJF, rætt þessi mál okkar á milli og velt því fyrir okkur hvort við á Norðurlöndunum búum yfir nægjanlegri þekkingu og skilningi á sjónarmiðum, réttindum og framlagi þeirra ljósmæðra sem tilheyra hópi frumbyggja á okkar svæðum. Ég verð að játa að ég geri það ekki. Grænlensk ljósmóðir tók þátt í mótmælunum á ráðstefnunni og samísk ljósmóðir frá Noregi flutti erindi um þau sjónarmið sem tengjast því að vera ljósmóðir með frumbyggja-uppruna. Við í stjórn NJF höfum því tekið sameiginlega ákvörðun um að kynna okkur málið betur og reyna að hafa áhrif til góðs innan ICM.

Það sem hafði mest áhrif á mig á ráðstefnunni, var að kynnast ljósmóðurinni Pashtoon frá Afganistan. Þvílík kona! Pashtoon er búsett í Belgíu og kom á ráðstefnuna á eigin kostnað því hún taldi mikilvægt að ljósmæður í Afganistan ættu rödd við borðið. Að hlusta á lýsingar hennar á því sem er að gerast þar í landi var hræðilegt. Hún lýsti því hvernig konur í Afganistan eru hreinlega komnar í stofufangelsi og komast jafnvel ekki út úr húsi með börnin sín. Líf kvenna er metið einskis virði af yfirvöldum þar í landi sem láta sér fátt um finnast þó konum blæði út eftir fæðingar. Pashtoon sagði mér frá því hvernig nánast engar fréttir berist frá landinu vegna mjög strangs fréttabanns sem þar ríki og að þeir sem brjóti það bann geti átt yfir höfði sér dauðarefsingu. Hún upplýsti mig einnig um að starfandi væri hollenskur hópur kvenna sem stæði fyrir því að aðstoða konur í Afganistan og mun hún senda mér upplýsingar um það hjálparstarf með þá von í brjósti að við hér á Íslandi getum lagt þeim lið.

Hér sit ég svo heima á Íslandi og kvarta undan veðrinu, að það sé sama rigningin og rokið allan ársins hring! Ég sem get ferðast þangað sem ég vil á mínu íslenska vegabréfi, þarf ekki að hræðast ofsóknir eða misþyrmingar og hef það svo afskaplega gott. Gæðum er svo sannarlega misskipt í þessum heimi. Mig langar til að tileinka mér þakklæti í ríkari mæli fyrir allt það sem ég hef. Við erum jú alls konar og okkur ber að virða það með því að sýna öðrum virðingu og umhyggju. Einnig þeim sem hafa ólíkar skoðanir eða önnur lífsgildi en þau sem við höfum. Samstaða kemur okkur áfram, sameinumst um að láta gott af okkur leiða.

Unnur Berglind og Pashtoon, ljósmóðir frá Afganistan.
Formenn norrænu ljósmæðrafélaganna.
Evrópudeild ICM á aðalfundi.