Beint í efni
Mynd eftir Anton Brink.

Verk á forsíðu

Fædd af mér inn í þennan heim, færir hún mig inn í sinn

Ingibjörg Sigurjónsdóttir er fædd árið 1985 í Reykjavík. Hún lauk BA­gráðu frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2010 og hefur tekið þátt í sýningum, gjörningum og öðrum verkefnum bæði hér á landi og erlendis. Ingibjörg hlaut Guðmundu­ verðlaunin árið 2022, en styrkur úr þeim sjóði er veittur framúrskarandi listakonu til hvatningar á sviði myndlistar. Fyrir utan að sýna eigin verk hefur Ingibjörg einnig starfað með öðrum listamönnum bæði að sköpun en einnig sem sýningarstjóri og við textagerð um myndlist.

Ingibjörg vinnur fjölbreytt myndlistarverk, jafnt þrívíða skúlptúra, lágmyndir og rýmisverk sem teikningar og málaðar myndir. Umhverfið og hvers­ dagslegur efniviður eru henni uppspretta verka sem leita á dýptina og fjalla jafnt um hverfulleika hins nálæga sem mannlega tilvist í stóru samhengi himin­ tungla sólkerfisins.

Þessu lýkur öllu, bara mishratt. Allt eyðist og máist út. Nema það sem skemmist og hverfur snögglega. Mig langar að stöðva tímann, hægja á eyðileggingunni.

Þessi orð Ingibjargar vísa til hverfulleika veraldarinnar en einnig hverfulleika verkanna og eðli listsköpunar. Hún gerir atlögu að því að höndla meintan tómleika og óstöðugt eðli listarinnar endi­ mörk hennar og þanþol. Verk hennar hverfast um þá þunnu línu sem liggur á milli þess að vera ekki neitt neitt og vera allt.

Þá sendi Ingibjörg frá sér bókina Heiglar hlakka til heimsendis árið 2022, en sú bók var samtímis gefin út á ensku undir heitinu Cowards can’t wait for the apocalypse. Bókin er nýstárleg blanda ljóðabókar og sjónlistarverks, þar sem myndirnar kalla á að vera lesnar og textarnir á að vera skoðaðir. Úr verður bók sem er allt í senn: Myndlistarbók, ljóðabók og skáld­ saga – og þó ekkert þessara. Textarnir og myndirnar eru samtvinnaðar en umfjöllunarefnin eru marg­ breytileg: Hjörtu týnast á heiðum, smalastúlka felur andlitið í höndum sér, einhver stuggar við hlut með stjörnuljósi, lystisemdir er hér að finna en líka efa­ semdir, heimsendir. Að lokum spyr einhver: Er bleikt kám hið eina sanna málverk?

Það verk sem birtist lesendum Ljósmæðra­ blaðsins að þessu sinni talar inn í þetta samhengi. Með verkinu fylgir eftirfarandi texti:

Ein af annarri. Stjörnur 2023

Dóttir mín réttir svo oft fram lófa
og sýnir mér hálfan heiminn.
Þar rúmast undur veraldar merkilega vel. Ég fæ að horfa með hennar skíru augum. Hún hleypir mér inn í hugarheim
því ég er mamma hennar.
Fædd af mér inn í þennan heim,
færir hún mig inn í sinn.
Víddirnar innra með henni endurvarp
af óravíddunum.