Beint í efni

Ljósmæðrafélag Íslands flytur

Skrifstofa Ljósmæðrafélagsins er lokuð 2.- 6. febrúar vegna flutninga.

Ljósmæðrafélagið er að flytja skrifstofu sína í húsnæði Lyfjafræðisafnsins að Safnatröð 3, 172 Seltjarnarnesi.

Þar til húsa er einnig Lyfjafræðingafélag Íslands þannig að við erum ekki alveg fluttar frá kjaraumhverfinu. Við í stjórn félagisns erum fullar tilhlökkunar að byrja starfsemi okkar í nýju umhverfi sem við þó eigum sterka tengingu við. Þess má geta að þetta húsnæði er gamla fjósið á Nesstofu sem hýsti Landlæknisembætti Íslands. Í þessu húsi starfaði fyrsta menntaða ljósmóðirin sem kom til landsins um 1760, Margrethe Katarine J.B. Magnússen til þess að annast kennslu ljósmæðra.

Ath alltaf er hægt er að ná sambandi við félagið í síma 8616855 ef erindið er brýnt.