Beint í efni

Félagslífið vorið 2025

Höfundur: Unnur Berglind Friðriksdóttir

Það er alltaf gaman að skrifa fréttir um félagslífið

hjá Ljósmæðrafélagi Íslands og rifja upp það sem við

ljós­ mæður höfum verið að gera undanfarna mánuði.

Í janúar var haldið nálastungunámskeið þar sem

Guðlaug María, sérfræðingur okkar ljósmæðra í nálastungum

var með tvö námskeið, eitt í Reykjavík og

annað á Akureyri. Færri komust að en vildu á námskeiðin

og líklegt að stutt bið verði í næstu grunn nám­

skeið. Þá er sömuleiðis kominn tími til að halda

upp­ rifjunar-/endurmenntunar-námskeið fyrir þær

ljós­ mæður sem hafa áður lært nálastungur.

Í upphafi árs var kjarakönnun lögð fyrir félagskonur

Ljósmæðrafélagsins svipaða þeirri frá fyrra

ári. Því miður virðist staðan óbreytt hjá ljósmæðrum:

starfs­ aðstæður eru ekki góðar og hið daglega álag of

mikið. Niður­ stöðurnar höfum við kynnt fyrir nýjum

heil­ brigðis­ ráðherra, sem mun vonandi beita sér fyrir

úrbótum. Ljós­ mæðra­ félagið hefur ákveðið að taka

þátt í stórri og ítarlegri norrænni rannsókn á starfs aðstæðum

og líðan ljós­ mæðra í sam­ starfi við Malin

Hanson, sem er prófessor í ljós­ móður­ fræði við Háskólann

í Gauta­ borg. Malin Hanson var einn af

lykil­ fyrir­ lesurum á norrænu ráð­ stefnunni sem nýlega

fór fram í Kaup­ manna­ höfn þar sem hún flutti áhrifaríkan

fyrir­ lestur undir yfir­ skriftinni Faglegt hugrekki í

ljósmóðurfræði. Í fyrir­ lestrinum fjallaði Malin um stöðu

ljós­ mæðra í fortíð, nútíð og framtíð. Hún kynnti sömu leiðis

hluta af niður­ stöðum þessarar rann­ sóknar sem

nú þegar hefur verið fram­ kvæmd í Svíþjóð, en þar

hefur verið við­ varandi ljós­ mæðra­ skortur undanfarin

ár. Niður­ stöðurnar voru sláandi, en til að mynda þá

er ein af hverjum fjórum ljós­ mæðrum þar í landi sem

hættir að starfa við ljós­ móður­ störf, einungis helmingur

vinnur fulla vinnu, veikinda­ tíðni er há og almennt er

mjög mikið álag í ljós­ móður­ starfinu. Lilja Þórunn

Þorgeirs­ dóttir ljós­ móðir við Háskólann í Borås og

Berglind Hálfdáns­ dóttir ljósmóðir við Háskóla Íslands

verða tengi­ liðir okkar í þessari mikil­ vægu rann­ sókn.

Við hjá Ljós­ mæðra­ félagi Íslands bíðum spenntar

eftir því að geta lagt þessa rann­ sókn fyrir ljós­ mæður

á Íslandi og hvetjum ykkur allar til þess að gefa ykkur

tíma til þess að taka þátt.

Í febrúar síðastliðnum var stofnuð fagdeild sérfræði­

ljósmæðra innan félagsins og var Guðlaug María

Sigurðardóttir kosin formaður hennar. Nú eru 19

ljós­ mæður sem hafa fengið sér­ fræði­ leyfi hjá Embætti

land­ læknis. Fleiri ljós­ mæður bíða þess að leyfi þeirra

verði sam­ þykkt, en bæði hafa Land­ spítalinn og Heilsugæsla

Höfuð­ borgar­ svæðisins boðið upp á náms­ leiðir

fyrir ljós­ mæður til að öðlast hæfni til að sækja um

sér­ fræði­ leyfi hjá Em­ bætti land­ læknis. Það verður

áhuga­ vert að fylgjast með starfi þessarar fag­ deildar

til að styrkja okkur sem sér­ fræðinga í mis­ munandi

undir­ greinum ljós­ móður­ fræðinnar. Félag heimaþjónustu

ljós­ mæðra heldur áfram sínu öfluga starfi,

en formaður félags heima­ þjónustu­ ljósmæðra er nú

Guðrún Hulda Gunnars­ dóttir. Fyrir­ hugaður er fundur

við Sjúkra­ tryggingar Íslands varðandi endur­ skoðun

á samningi. Ljósurnar, félag ljós­ mæðra 60 ára og eldri,

hittast reglu­ lega og fóru í sína árlegu óvissu­ ferð

í júní, en þeirri ferð verða gerð betri skil annars

staðar í blaðinu.

Aðalfundur Ljósmæðrafélags Íslands var haldinn

þann 3. apríl síðastliðinn. Á þessum fundi var lögum

félagsins breytt, þar sem kafli um sérstaka Siðanefnd

hjá félaginu var samþykktur. Það er mikilvægt að

við eins og aðrar heilbrigðisstéttir höfum okkar eigin

siða­ nefnd, þar sem hægt er að taka til skoðunar fagleg

málefni.

Á alþjóðadegi ljósmæðra þann 5. maí héldum við

málþing í Þjóðminjasafni Íslands í samstarfi við Félag

þjóðfræðinga á Íslandi og Náms­ braut í þjóð­ fræði við

Háskóla Íslands um með­ göngur, fæðingar og þjóðfræði,

en Ólöf Ásta Ólafs­ dóttir ljós­ móðir skrifar um

mál­ þingið í blaðinu. Á málþinginu var ný spurningaskrá

um barn­ eignar­ ferlið kynnt en hún var opnuð

þann sama dag. Hana má nálgast á sarpur.is undir

flipanum þjóð­ hættir. Takið endilega þátt í þessari

könnun og hvetjið fólk í kringum ykkur til að gera

slíkt hið sama fyrir komandi kynslóðir.

Ljósmæðrafélagið hélt svo okkar Ljósmæðradag

þann 9.maí í Nauthól þar sem yfir 70 ljósmæður komu

saman og ræddu mikilvægi skráningar út frá ólíkum

sjónarhornum, en fræðsludeginum verða gerð betri

skil í blaðinu.

Íslenski ljósmæðra­hópurinn í Kaupmannahöfn.

Þann 30. maí kynntu okkar nýjustu ljósmæður

meistaraverkefni sín. Alltaf jafn skemmtilegur og

áhuga­ verður dagur, glæsileg umgjörð og fjöl­ breytt

rannsóknarefni kynnt sem gefur til kynna metnaðarfulla

námsbraut. Í blaðinu er nánari umfjöllun um

meistaraverkefnin.

Í júní fengum við Sigurð Sigurbjörnsson frá Lífeyrisframtíðinni

til að fara yfir lífeyrismál með okkur

en það er mikilvægt kjaramál að huga snemma að

þeim leiðum sem eru okkur færar í þeim málum. Við

viljum jú allar hámarka okkar tekjur eftir starfs­ lok.

Kynningin var haldin hér í Borgartúni 6, en einnig

streymt á zoom, auk þess sem kynningin var tekin

upp fyrir þær sem ekki komust.

Samstarfið innan BHM hefur verið með svipuðum

hætti og síðustu ár, en óneitanlega er mikil breyting á

daglegum samskiptum þegar flest aðildar­ félaganna hafa

flutt úr Borgartúni 6. Þá höfum við ásamt for­ mönnum

Félags íslenskra hjúkrunar­ fræðinga, Lækna­ félags

Íslands, Lyfja­ fræðinga­ félags Íslands og Sjúkra­ liða­ félags

Íslands hist reglu­ lega, en það hefur verið mikil­ vægt fyrir

okkur allar að eiga þetta sam­ starf þar sem við getum

deilt okkar þekkingu og reynslu, enda eigum við mörg

sameigin­ leg hagsmunamál.

Erlent samstarf hefur verið með hefðbundnum

hætti. Fundur formanna NJF var haldinn dagana fyrir

NJF-ráðstefnuna í Kaupmannahöfn, en sér­ pistill er

um það í blaðinu. Á NJF ráðstefnunni sem haldin

var á Tivolí hótelinu í Kaupmannahöfn 26.–28. maí

síðast­ liðinn voru um 1000 ljósmæður saman­ komnar

frá fjölda landa. 74 ljósmæður komu frá Íslandi og

vorum við þar með þriðja fjöl­ mennasta landið. Átta

íslenskar ljós­ mæður voru með eitt eða fleiri erindi og

voru tólf vegg­ spjöld frá Íslandi. Þær ljós­ mæður sem

héldu erindi voru Berglind Hálfdáns­ dóttir, Elsa Ruth

Gylfa­ dóttir, Edythe Mangindin, Embla Guðmundsdóttir,

Emma Marie Swift, Hilda Guðný Svavars­ dóttir,

Hilda Friðfinns­ dóttir og Sigfríður Inga Karls­ dóttir. Við

íslenskar ljós­ mæður getum sannar­ lega verið stoltar

af okkar framlagi.

Það hefur verið mikil umræða bæði á fundum

EMA og ICM vegna breytinga á Evrópu­ reglu­ gerðinni

um menntun ljósmæðra og töluverð vinna farið í að

móta sameiginlegar tillögur að breytingum, en EMA

og ICM hafa verið í náinni sam­ vinnu vegna þessa.

Aðal­ fundur EMA verður haldinn í Riga á Eistlandi

í haust, en það hafa verið haldnir tveir raf­ rænir fundir

í vetur, vegna þeirra breytinga sem fyrir­ hugaðar eru

á Evrópu­ reglu­ gerðinni um ljós­ mæður. Menntunar­ ráð-

stefnan verður síðan haldin á Möltu í október. ICM

hefur ein­ göngu haldið raf­ ræna fundi í ár sem hefur

verið mjög kær­ komið enda mun auð­ veldara fyrir

aðildar­ löndin að hafa full­ trúa á fundunum þegar þeir

eru raf­ rænir, bæði þegar Evrópu­ deildin hefur fundað

sem og þegar alþjóð­ legir fundir hafa verið haldnir. Rafrænar

atkvæða­ greiðslur hafa síðan verið haldnar eftir

á. Þess má geta að á síðasta Evrópu­ fundinum kynnti

Berglind Hálfdáns­ dóttir rann­ sóknir sínar og sam­ starfsfélaga

um „free birth“ fæðingar hér á landi. Næsti

stað­ fundur ICM verður í Lissabon í júni árið 2026

í tengslum við næstu ICM ráðstefnu.

Það eru spennandi tímar framundan hjá Ljósmæðrafélaginu,

þótt við séum enn í óvissu varðandi

húsnæðismál og stefnan er tekin á blómlegt starf

næsta vetur. Strax í haust verður námskeiðið Þegar

fjöl­ skylda fæðist haldið og áfram munum við nota

tæknina og halda rafræna fræðslufundi.

Vinna er hafin við að uppfæra smáforrit félagsins

Fylgja og við hlökkum mikið til þegar það verður

komið í fulla virkni aftur. Hægt er að sækja for­ ritið

bæði fyrir Apple og Android síma og nálgast aðgangs­

orðið hjá félaginu. Síða félagsins ljosmodir.is var

upp­ færð af Hug­ smiðjunni með góðri aðstoð Gauta

Skúla­ sonar hjá Visku og tókst sú vinna frábær­ lega vel.

Við erum gríðar­ lega stolt af því að ljosmodir.is fékk

íslensku vef­ verð­ launin í flokki sam­ félags­ verkefna.

Að lokum minnum við á nýja heimasíðu Ljósmæðrafélagsins

sem loksins er komin í loftið. Allar

ábendingar um efni sem á heima þar inni eru vel

þegnar, því þetta er jú heimasíða okkar allra.

Formenn ljósmæðrafélaga Norðurlandanna, hver við sinn þjóðfána.
Verðlaunum fyrir vefsíðuna veitt viðtaka.