Það vantar eina milljón ljósmæðra í heiminum í dag!
Þú eða einhver sem þú þekkir hefur þurft eða mun þurfa á ljósmóður að halda. Eins og staðan er í dag hafa því miður ekki allir aðgang að ljósmæðraþjónustu.
Talið er að það skorti eina milljón ljósmæðra í heiminum. Að brúa þetta bil gæti komið í veg fyrir flest dauðsföll mæðra og nýbura, dregið úr óþarfa inngripum og tryggt að konur og kynsegin fólk fái örugga og einstaklingsmiðaða þjónustu.
Skrifaðu undir áskorunina hér og hjálpaðu okkur að safna einni milljón undirskrifta til að krefjast einnar milljónar ljósmæðra til viðbótar og þeirrar fjárfestingar sem þarf til að láta það verða að veruleika.
