Söfnun fyrir fæðingapökkum handa barnshafandi konum í Úkraínu

Söfnun fyrir fæðingapökkum handa barnshafandi konum í Úkraínu

Vilt þú hjálpa okkur að hjálpa þeim ?
Ljósmæður á Íslandi hafa leitað leiða til að geta látið gott af sér leiða til úkraínskra kvenna og barna. Um 80 þúsund konur í Úkraínu eigi von á barni á næstu þremur mánuðum og eins og komið hefur fram í fjölmiðlum þá hafast margar þeirra við í neðanjarðarbyrgjum, á lestarstöðvum og í kjöllurum sjúkrahúsa oft við skelfilegar aðstæður. Íslenskar ljósmæður vilja styrkja eitthvað sem er alveg örugglega að fara beint til kvennanna.  Eftir talsverða yfirlegu fundum við frábært verkefni sem er skipulagt af pólskum ljósmæðrum sem hafa tekið höndum saman og safna fyrir og útbúa neyðar-fæðingapakka sem komið er til kvenna í Úkraínu. Í pökkunum eru m.a. fæðingaáhöld, sterílir hanskar, sótthreinsir, bindi og hlý teppi ásamt því nauðsynlegasta fyrir nýburann. Pökkunum fylgja líka einfaldar leiðbeiningar fyrir þann sem aðstoðar við fæðinguna.
Nú biðlum við til ykkar - margt smátt gerir eitt stórt. 
Hægt er að leggja inn á reikning : 0336-03-401080    Kt. 560470-0299