Endurmenntun HÍ minnir á framlengdan umsóknarfrest fyrir nám í undirstöðuatriðum hugrænnar atferlismeðferðar sem fer af stað hjá Endurmenntun HÍ í haust.
Töluvert af umsóknum hefur þegar borist en með framlengdum umsóknarfresti gefst enn tækifæri á að sækja um.
Frekari upplýsingar um námið gefur Elín Júlíana Sveinsdóttir, umsjónarmaður námsbrautarinnar í gegnum tölvupóstfangið elins@hi.is eða í síma 525-5296.
Nánari lýsing á náminu hér.
Enn tekið við umsóknum.
Námið er haldið í samvinnu Félags um hugræna atferlismeðferð.
Megináhersla er á hagnýta þekkingu á undirstöðuatriðum hugrænnar atferlismeðferðar. Markmiðið er að veita fræðilega yfirsýn yfir grunnatriði kenninga um hugræna atferlismeðferð, líkön, hugtakanotkun og aðferðir ásamt því að öðlast skilning á tengslum kenninga og meðferðar, einkum við þunglyndi, kvíða og álagi í daglegu lífi.
Námið er einkum ætlað háskólamenntuðu fagfólki innan heilbrigðis-, félags- og menntavísinda sem og stjórnendum stofnana og fyrirtækja.
Nemendur hljóta m.a. hæfni í að:
• beita grunnatriðum í samtalsaðferðum hugrænnar atferlismeðferðar.
• þekkja einkenni og leggja mat á alvarleika streitu, kvíða og þunglyndi.
• nota fimm þátta líkan hugrænnar atferlismeðferðar og þekkja tengsl hugsana, hegðunar og tilfinninga.
• beita aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar t.d. í fyrirbyggjandi tilgangi í afmörkuðum starfstengdum verkefnum.
Námið er ekki eiginlegt meðferðarnám en nemendur öðlast þekkingu og innsýn í aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar á námstímanum.
Námið samsvarar 10 ECTS einingum.
Kennslulotur:
Kennt er frá 9:00-16:00 eftirtalda daga:
25. og 26. september
23. og 24. október
27.og 28. nóvember
22. og 23. janúar 2016
19. og 20. febrúar
17., 18. og 19. mars
15. og 16. apríl