Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
LJÓSMÓÐIR
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða (HVEST) á Ísafirði óskar að ráða ljósmóður í 60-70% fasta stöðu frá1. júní 2017, eða eftir samkomulagi.
Um er að ræða störf við fæðingarhjálp og umönnun sængurkvenna og nýbura á sjúkrahúsi,
og mæðra- og nýburavernd á heilsugæslustöð. Starfsskyldur eru við HVEST á Patreksfirði í fyrirfram ákveðnum ferðum þangað.
Tvær ljósmæður skipta á milli sín daglegum verkum og gæsluvöktum utan dagvinnu.
Ef óskað er eftir hærra stöðugildi en 70%, eru önnur störf hjúkrunarfræðings á stofnuninni í boði.
Menntunarkröfur eru íslenskt hjúkrunar- og ljósmóðurleyfi og starfsreynsla við ofangreind störf.
Laun eru skv. gildandi kjarasamningum fjármálaráðherra og Ljósmæðrafélags Íslands og stofnanasamningi.
Upplýsingar veita Hörður Högnason, framkvæmdastjóri hjúkrunar, í s: 8940927 (hordur@hvest.is) og Erla Rún Sigurjónsdóttir, ljósmóðir á HVEST, í s: 8607455 (faeding@hvest.is).
Umsóknarfrestur er til 31. maí 2017.
Vinsamlegast sendið umsóknir rafrænt á hordur@hvest.is eða á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, Torfnesi, 400 Ísafirði.
Umsóknareyðublað er að finna á vefnum www.hvest.is undir viðkomandi starfsauglýsingu og í afgreiðslu stofnunarinnar á Ísafirði.
Öllum umsóknum verður svarað þegar, ráðning hefur verið ákveðin.
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
LJÓSMÓÐIR - SUMARAFLEYSING
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða (HVEST) á Ísafirði óskar að ráða ljósmóður í 80% stöðu í sumarafleysingu frá miðjum júlí til miðs ágúst 2017, eða eftir nánara samkomulagi.
Um er að ræða störf við fæðingarhjálp og umönnun sængurkvenna og nýbura á sjúkrahúsi,
og mæðra- og nýburavernd á heilsugæslustöð. Gæsluvakt er utan dagvinnutíma.
Menntunarkröfur eru íslenskt hjúkrunar- og ljósmóðurleyfi og starfsreynsla við ofangreind störf.
Laun eru skv. gildandi kjarasamningum fjármálaráðherra og Ljósmæðrafélags Íslands og stofnanasamningi.
Upplýsingar veita Hörður Högnason, framkvæmdastjóri hjúkrunar, í s: 8940927 (hordur@hvest.is) og Erla Rún Sigurjónsdóttir, ljósmóðir á HVEST, í s: 8607455 (faeding@hvest.is).
Umsóknarfrestur er til 15. maí 2017.